Jæja, þá er þessari helgi loksins lokið. Fólk getur snúið aftur til síns heima, reynslunni ríkari, og helmingi fátækari!
Á föstudagskvöldið skrapp ég í bæinn ásamt Kollu og karli föður mínum, og sátum dágóða stund fyrir utan Café Amour. Mér blöskruðu lætin og vitleysan að venju, en svona næturlíf og „skemmtun„ get ég ómögulega skilið (svo ekki sé minnst á niðurbæld óþægindi í svona félagsskap eftir atburði maí mánaðar). Hvað sem því líður, var þetta með rólegra móti hjá mér.

Ég tók mig svo til í dag og uppfærði PostgreSQL á þjóninum mínum trygga, og á leiðinni eru uppfærslur á HTTPD og PHP. Yfir og út.