29. sept. 2006
Dugnaðurinn hefur verið með ólíkindum þessa vikuna, þrátt fyrir allar stundirnar með tilvonandi brúðhjónunum. Jan og Halldóra ætla að ganga í það heilaga þann 8. október, svo það er víst ekki minna að gera á þeim bænum um þessar mundir. Ósköp er tíminn fljótur að líða!
Við Kolla höfum hins vegar ákveðið að bregða okkur til höfuðborgarinnar í dag, og dvelja þar til sunnu- eða mánudags. Þetta verður bara dæmigerð helgarreisa án nokkurrar dagskrár, svona rétt til að fá örlitla tilbreytingu í tilveruna.
Góða helgi!
Þessi færsla hefur verið lesin 482 sinnum
27. sept. 2006
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins er ber fyrirsögnina Myrkvað víða um land, verður engin götulýsing víða um landið, og íbúar jafnframt hvattir til að slökkva ljós í húsum sínum á milli 22:00 og 22:30. Ástæðan? Stjörnufræðingur að nafni Þorsteinn ætlar að „lýsa himninum í beinni útsendingu á Rás 2″.
Eins og það sé ekki nóg að hýrast í svarta myrkri þorra vetrar! Ég skal sko lýsa himninum fyrir þeim sem vilja: Hann verður grár og gugginn!#@
- Nöldrarinn
Þessi færsla hefur verið lesin 496 sinnum
21. sept. 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
PHP
Prenta
|
Senda færslu
|
Engar athugasemdir
PHP is full of surprises and quirks. Some can be useful if carefully exploited, but some aren’t. Attached is a short list of some of my greatest issues with PHP.
phpIssues.pdf
Lesa meira af „PHP issues“
Þessi færsla hefur verið lesin 817 sinnum
21. sept. 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn
Prenta
|
Senda færslu
|
3 athugasemdir
Mig dreymdi furðulega í nótt. Draumurinn var einhvern veginn á þá leið að ýmist var ég að elta (óvopnaður) eða flýja tígrisdýr og pandabirni. Birnirnir voru góðkunningjar mínir, en tígrisdýrin vor þeirra erkifjendur, og ég hafði tekið að mér að reyna að stilla til friðar þeirra á milli. Við eltingaleikinn naut ég aðstoðar ýmissa leiktækja, betur þekkt á leikvöllum borga fremur en á kafi í dýpstu skógum. Ég renndi mér niður rennibrautir og sveiflaði mér í rólum, ýmist til skjótrar undankomu eða til að koma einhverjum tígrinum að óvörum. Einhvern veginn barst þessi eltingaleikur að eyðibýli á bökkum einhverrar ár, en hvað gerðist eftir það man ég ekki lengur.
Rétt í þessu las ég svo grein um mann sem beit pandabjörn. Ætli hann hafi verið einn af tígrunum?
Þessi færsla hefur verið lesin 479 sinnum
20. sept. 2006
Mér áskotnaðist gömul ljóðabók frá fyrri hluta 20. aldar fyrir áratug eða svo. Hún inniheldur viðamikið safn hvers kyns ljóða eftir ýmsa hagmælta menn. Illu heilli hefur skruddan sú falið sig í dýpstu fylgsnum kassanna í geymslunni, og mér verður gjarnan hugsað til hennar þegar ég rifja upp eftirfarandi vísu. Sem fyrr er ég eins gleyminn á höfundana og ég er minnugur á fjölda fingra handa minna. Lesa meira af „Af rógi og sannleika“
Þessi færsla hefur verið lesin 542 sinnum