Mig dreymdi furðulega í nótt. Draumurinn var einhvern veginn á þá leið að ýmist var ég að elta (óvopnaður) eða flýja tígrisdýr og pandabirni. Birnirnir voru góðkunningjar mínir, en tígrisdýrin vor þeirra erkifjendur, og ég hafði tekið að mér að reyna að stilla til friðar þeirra á milli. Við eltingaleikinn naut ég aðstoðar ýmissa leiktækja, betur þekkt á leikvöllum borga fremur en á kafi í dýpstu skógum. Ég renndi mér niður rennibrautir og sveiflaði mér í rólum, ýmist til skjótrar undankomu eða til að koma einhverjum tígrinum að óvörum. Einhvern veginn barst þessi eltingaleikur að eyðibýli á bökkum einhverrar ár, en hvað gerðist eftir það man ég ekki lengur.

Rétt í þessu las ég svo grein um mann sem beit pandabjörn. Ætli hann hafi verið einn af tígrunum? ;)