Ég hef orðið vitni að ýmsu furðulegu um ævina, en þessi frétt fékk mig til að athuga hvort um aprílgabb væri að ræða. Í hnotskurn snýst hún um að Kaliforníuríki hefur lögsótt ýmsa bílaframleiðendur á þeim forsendum að gróðurhúsaáhrifin títtnefndu séu þeim að kenna. Í hvað ætli þeir háu herrar muni svo verja gróðanum í? Nýja eðalvagna eða heimsreisur? Mér finnst þetta blátt áfram asnalegt (eins og svo margt annað).
september 2006
Kalifornía gegn bílaframleiðendum
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir FréttirPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Dauðar dauðar skötur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Í dag gefur að líta frétt um grunsemdir um hefndaraðgerðir aðdáenda Steve Irwins. Fyrsta setning greinarinnar er nokkuð lýsandi fyrir ástand ritskoðunar vefs Morgunblaðsins, þ. e. a. s. „dauð„:
„Dauðar gaddaskötur, sem búið var að skera halann af, hafa fundist dauðar í Ástralíu.„
Súptu á aftur…
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir SkáldskapurPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Ég man ekki hvar né hvenær ég las þetta vísukorn, og þaðan af síður hver höfundur hennar var. Það eina sem ég er viss um, er að hún er komin vel til ára sinna. ![]()
Henni fylgdi eilítil saga til útskýringar, og er á þessa leið:
Lesa meira af „Súptu á aftur…„
Forvitni
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Mér leikur forvitni á að vita hvað mínum dyggu lesendum finnst almennt um yfirborðskenndari þætti vefdagbókarinnar, s. s. útlit (litasamsetningar, uppbygging, o. s. frv.) og virkni (þægindi við skoðun og notkun yfirleitt). Í ljósi þess hef ég sett upp nýja skoðanakönnun (næst neðsti ramminn til hægri) með gamla og góða einkunnakerfinu frá því úr grunnskóla, þar sem ágætt er betra en gott.
Ef það nægir ekki, megið þið gjarnan koma ykkar skoðunum á framfæri um það sem betur mætti fara, og ég skal íhuga það vel og vandlega. Mér er ekki síður mikilvægt að veita ánægjulega afþreyingu í formi skrifa sem og framreiðslu.
Fyrsta kennsludegi lokið
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Þá er eldskírnin afstaðin, og ég held að ég hafi staðist hana með sóma! Krakkarnir voru furðu áhugasamir og prúðir í báðum hópum, og þrátt fyrir ýmsa tæknilega örðugleika í byrjun, héldu allir ró sinni.
Lesa meira af „Fyrsta kennsludegi lokið„