október 2006


Jæja, þá er þetta allt komið í gott horf. Skemmdu línunni hefur verið skipt út fyrir nýja. Línudeyfing er í algjöru lágmarki eftir að ég var tengdur við símstöðina í Fjölnisgötu í stað Hafnarstrætis, en sú fyrrnefnda er mun nær staðsett. Þá var tengingu um stöð Símans einnig leiðrétt, og flutt til Vodafone. Að lokum var hraði tengingarinnar uppfærður í 8 mbps.

Heimir hjá Vodafone fær mínar bestu þakkir fyrir liðleikann og snör viðbrögð í kvöld, og að sjálfsögðu allir aðrir sem að málinu komu. ;)

Símvirkinn birtist galvaskur skömmu fyrir 11 í morgun. Að venju virtist allt í lagi við fyrstu athugun, en fljótlega tók að berast á fyrrgreindum vandamálum. Eftir ýmsar mælingar komst hann að þeirri niðurstöðu að línan frá Símanum væri „í klessu„. Það er lán í óláni, því Síminn er alræmdur fyrir seinagang og slæping þegar að hvers kyns færslum eða breytingum kemur, en á hinn bóginn þarf ég þá ekki að borga fyrir nýju línuna, því að sjálfsögðu á Síminn að halda sínum lögnum í lagi. ;)

Það verður gaman að sjá hvenær þær framkvæmdir hefjast, og hvernig þeim lýkur.

Búinn að uppfæra vefdagbókina í WordPress 2.0.5 – Ronan. Ég er strax búinn að gleyma hvað fólst í uppfærslunni, en er nokkuð viss um að það hljóti að vera af hinu góða. ;) Annars bíð ég enn eftir símvirkjanum góða…

Mikill hávaði (eða truflanir) hefur mælst á símalínunni hjá mér frá því á fimmtudaginn. Þetta kemur skýrt fram þegar hringt er í eða úr heimasímanum, því ef hann er ekki alveg sambandslaus, eru truflanirnar blátt áfram ærandi. Enn fremur hefur þetta áhrif á DSL tenginguna, með ýmist mjög takmarkaðri afkastagetu eða algjöru sambandsrofi. Ég brá mér í verslun Símalands í morgun og bað um símvirkja hið fyrsta.

Jæja, þá ætla ég að fækka netföngunum um eitt og segja skilið við Hotmail. Eftir að ég gróf upp Passport Network og skráði aðal netfangið mitt hef ég engin not fyrir Hotmail lengur. Fyrst þegar ég notaði MSN Messenger, voru frumskilyrði að nota netfang frá Hotmail. Ég veit svo sem ekki hvenær þetta breyttist og fólk gat notað netföng sín frá öðrum þjónustuaðilum, en það var að minnsta kosti ekki fyrr en í dag sem ég fann út hvernig. ;)

Fyrir þá sem hafa gleymt mér, þá verður sigaxel-emailidle-email.