31. okt. 2006
Hávaði – lokaþáttur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Jæja, þá er þetta allt komið í gott horf. Skemmdu línunni hefur verið skipt út fyrir nýja. Línudeyfing er í algjöru lágmarki eftir að ég var tengdur við símstöðina í Fjölnisgötu í stað Hafnarstrætis, en sú fyrrnefnda er mun nær staðsett. Þá var tengingu um stöð Símans einnig leiðrétt, og flutt til Vodafone. Að lokum var hraði tengingarinnar uppfærður í 8 mbps.
Heimir hjá Vodafone fær mínar bestu þakkir fyrir liðleikann og snör viðbrögð í kvöld, og að sjálfsögðu allir aðrir sem að málinu komu.
Þessi færsla hefur verið lesin 476 sinnum