október 2006


Í kvöld hef ég verið að dunda mér við að útbúa hugbúnaðarpakka fyrir Slackware 11.0. Til að byrja með tók ég upprunalega FreeType 2 pakkann og virkjaði svonefndan „bytecode interpreter„ til að TrueType leturgerðir líti þokkalega út í Linux. Þessu næst sótti ég Firefox 2.0 og útbjó nýjan pakka fyrir hann.

Áhugasamir geta fundið pakkana ásamt SlackBuild skránum á slackware.iceware.net/packages.

Í gær komst ég að því að vetrardekk (þessi gömlu grófmynstruðu) eru lítils virði í snjónum og hálkunni hér norðan heiða. Ef ég verð ekki kominn á sæmilega loftbólubarða um mánaðamótin, verður að öllum líkindum ekkert úr fyrirhuguðu ferðalagi til Reykjavíkur. Ætlunin er að fara og fylgjast með haustmóti ÍSS dagana 3. til 5. nóvember í Laugardalnum, og aftur bikarmótinu 24. til 26 nóvember. Lesa meira af „Meiri snjór„

Jæja, mér tókst að grafa upp Firefox útgáfu 2.0 áður en hún var kunngerð. Áhugasamir geta fundið nýjustu útgáfuna (þetta er ekki 2.0 RC3, nota bene) á að minnsta kosti einum þjóni Mozilla manna. Hax, hax, hax! ;)

Jæja, þá er sjöunda útgáfa IE tilbúin til niðurhals. Ég er enn ekki viss hvort ég eigi að fagna eða gráta. Hvað eru þá vafrarnir orðnir margir sem við vesælu vefsmiðir þurfum að sérsníða vefina okkar fyrir? Það eina sem ég er viss um er að ég ætla ekki að setja hann upp á mínum vélum fyrr en ég er viss um að geta notað IE 6 meðfram þeim nýja.

Ég er einn þeirra heppnu sem helst sæmilega unglegur, og er ósjaldan spurður um skilríki við innkomu eða kaup á vörum háðum aldurstakmörkunum. Jafnframt tel ég það starfsfólki skemmtistaða sem og annarra til góða að óska eftir sönnun um aldur fólks. Hins vegar fannst mér um þverbak keyra þegar ég las auglýsingu Sjallans á Akureyri í Dagskránni. Aldurstakmarkið er 18 ár, og farið er fram á ökuskírteini ellegar vegabréf því til sönnunar. Skýrt er tekið fram að debetkort séu ekki tekin gild. Hvað um þá sem aldrei hafa þreytt bílpróf eða ferðast til útlanda? Þeir eiga hvorugt. Þó meirihluti unglinga nú til dags taki bílprófið við fyrsta tækifæri eða ferðist út fyrir landsteinana um fermingu, finnst mér rangt að útiloka hina sem hvorugt hafa gert. Það vill nefnilega svo einkennilega til, að margir eru enn að taka út líkamlegan þroska á þessum aldri, og kunna því að virðast mun yngri en þeir eru í raun og veru.

Er fölsun debetkorta á Íslandi virkilega það algeng að ekki er lengur hægt að treysta á þau sem frambærileg persónuskilríki? Ef ekki, hvaða ástæður gætu hugsanlega legið að baki þessarrar ákvörðunar starfsmanna Sjallans?

- Tuðarinn