nóvember 2006


Eftir ábendingu frá góðkunningja mínum Val ákvað ég að hefja svolitla tilraunastarfsemi. Hún felst í að prófa mismunandi bjór og öl tegundir. ;)

Í dag fjárfesti ég í einni flösku af hverjum; Strong Suffolk, Ruddles County, Leffe Blonde og Leffe Brune. Strong Suffolk kemur vel út. Áberandi maltbragð og keimur af dökkum ávöxtum (fíkjur, plómur, rúsínur), þéttur og hálfsætur með votti af karamellu. Ruddles County hefur aftur á móti versnað til muna eftir eigendaskipti brugghússins, segja þeir er þekkja til. Hann bliknar í samanburði við Strong Suffolk. Mun léttari og beiskari, en enn má finna maltbragðið og ávaxtaríkan ilm.

Belgíski Leffe bjórinn er svo næstur á listanum.

Í Morgunblaðinu má lesa um gjöf Jólasveinaþjónustu Skyrgáms til þurfandi þjóða. Þó ásetningurinn sé góður, er Skyrjarmur gamli ekki heldur snemma á ferð? Að mig minnir er hann venjulega áttundi í röðinni, og því venjulega á ferð þann 19. desember.

Að undanförnu hef ég prófað mig lítillega áfram með ýmsar gerðir af bjór. Guinness er ágætur, en svolítið vatnsbragð af honum. Tim Murphy, kunningi minn frá Írlandi benti mér nýverið á aðra gerð af dökkum bjór, nefnilega Beamish. Ég verð að segja, að eftir að hafa bragðað Beamish, finnst mér lítið koma til Guinness. Annars finnst mér hveitibjór ágætur líka, einkum þó hinn þýski Erdinger Weißbier.

Í öðrum fréttum má nefna kaup á reykjarpípu. Heima við, svæli ég nánast einvörðungu pípuna, en blessuð íþróttablysin eru jafnan tekin upp þegar ferðast er.

Heilsan í fyrirrúmi! ;)

After upgrading to WordPress 2.0.5 I started experiencing an odd problem when posting my entries. PHP was running out of memory with 16 MB allocated, a problem I traced back to the maybe_serialize function found in wp-includes/functions.php. As the entries were properly saved each time, I decided that I could just live with the problem, or at least until a WordPress patch would be posted, or I knew the actual cause. I wasn’t patient enough, however, so I decided to muck around with my set up a bit.

Lesa meira af „Google Sitemaps & WordPress 2.0.5″

Ég setti upp LiteStep að gamni mínu fyrr í kvöld. LiteStep er skel fyrir Windows sem kemur í stað þeirrar sjálfgefnu. Það tók mig smá stund að finna þema sem mér líkaði ágætlega, en að lokum varð popsicle fyrir valinu. Næstu dagar fara því líklega í að rannsaka möguleikana og fikta í stillingunum. ;)

Hægt er að smella á myndina hér fyrir neðan til að sjá stærri mynd af skjáborðinu.

LiteStep