Ég setti upp LiteStep að gamni mínu fyrr í kvöld. LiteStep er skel fyrir Windows sem kemur í stað þeirrar sjálfgefnu. Það tók mig smá stund að finna þema sem mér líkaði ágætlega, en að lokum varð popsicle fyrir valinu. Næstu dagar fara því líklega í að rannsaka möguleikana og fikta í stillingunum. ;)

Hægt er að smella á myndina hér fyrir neðan til að sjá stærri mynd af skjáborðinu.

LiteStep