Að undanförnu hef ég prófað mig lítillega áfram með ýmsar gerðir af bjór. Guinness er ágætur, en svolítið vatnsbragð af honum. Tim Murphy, kunningi minn frá Írlandi benti mér nýverið á aðra gerð af dökkum bjór, nefnilega Beamish. Ég verð að segja, að eftir að hafa bragðað Beamish, finnst mér lítið koma til Guinness. Annars finnst mér hveitibjór ágætur líka, einkum þó hinn þýski Erdinger Weißbier.

Í öðrum fréttum má nefna kaup á reykjarpípu. Heima við, svæli ég nánast einvörðungu pípuna, en blessuð íþróttablysin eru jafnan tekin upp þegar ferðast er.

Heilsan í fyrirrúmi! ;)