Eftir ábendingu frá góðkunningja mínum Val ákvað ég að hefja svolitla tilraunastarfsemi. Hún felst í að prófa mismunandi bjór og öl tegundir. ;)

Í dag fjárfesti ég í einni flösku af hverjum; Strong Suffolk, Ruddles County, Leffe Blonde og Leffe Brune. Strong Suffolk kemur vel út. Áberandi maltbragð og keimur af dökkum ávöxtum (fíkjur, plómur, rúsínur), þéttur og hálfsætur með votti af karamellu. Ruddles County hefur aftur á móti versnað til muna eftir eigendaskipti brugghússins, segja þeir er þekkja til. Hann bliknar í samanburði við Strong Suffolk. Mun léttari og beiskari, en enn má finna maltbragðið og ávaxtaríkan ilm.

Belgíski Leffe bjórinn er svo næstur á listanum.