29. des. 2006
Sköpunargleði
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Í dag hef ég verið þungt haldinn af sköpunargleði. Fór hamförum í þjóðskrárleitarvél minni með AJAX og Smarty að vopni, hlutbundna forritun að leiðarljósi. Fáeinum tímum og tveimur hugdettum síðar rissaði ég á blöð uppköst að fyrirtækjamerkjum: eitt til eigin afnota, annað fyrir gamlan viðskiptavin. Þegar hér er komið álít ég réttast að leggja mig áður en um þverbak keyrir.
Þessi færsla hefur verið lesin 765 sinnum
30. desember 2006 kl. 15:34
hahahahha já ekkert smá hugulsamt!!
30. desember 2006 kl. 17:35
Humm, gæti hugsast að þú hafir ætlað að skrifa athugasemd við næstu færslu?
11. janúar 2007 kl. 22:09
[...] Líkt og fyrr getur hef ég fengist umtalsvert við þjóðskrána að undanförnu. Leitarvélin er góð og uppfyllir ströngustu skilyrði um aðgengi, XHTML 1.1 og CSS 2. Að gamni mínu bætti ég ýmsum óþarfa við, líkt og sjálfvirkri fullkomnun, leitar og birtingu niðurstaða með aðstoð JavaScript (AJAX, fyrir unnendur tískuorða) og fleira í þeim dúr. Í dag gerði ég mér ljóst að það væri ekki nóg. Þjóðskráin, eins og hún kemur fyrir, er óttalegur stafaruglingur. Það er seinlegt og leiðinleg handavinna að sækja mánaðarlegar uppfærslur, breyta úr DOS línubilum í UNIX, umrita sem UTF-8, og að lokum keyra í gegnum hverja færslu til að búa til viðeigandi SQL skipun til að dúndra dótinu í gagnagrunninn. [...]