Reglur þeirra og kúnstir fara örlítið í skapið á mér í dag. Þannig er málum háttað að einu sinni í mánuði þurfa atvinnulausir (sem þiggja bætur) að tilkynna sig til Svæðisvinnumiðlunar. Tímabilið er jafnan frá 20. til 25. hvers mánaðar, og var desember engin undantekning. Flestir kannast við annríkið og stressið sem jafnan er undanfari jólanna, og ég var ekki alveg undanþeginn því. Því fór svo að ég gleymdi að skrá mig á vef Vinnumálastofnunar. Afleiðingar þess? Engar atvinnuleysisbætur. Ég gerði mér þetta ljóst fyrst á miðvikudaginn, og sendi bæði tölvupóst og hringdi vegna þess. Þá var mér gert ljóst að ekkert yrði aðhafst né nokkur skýring tekin til greina fyrr en mér hefði borist bréf frá þeim. Merkilegt nokk. Klukkan 17:00 í dag fann ég bréf í póstkassanum frá Svæðisvinnumiðlun, umtalsvert eftir að þeir lokuðu skrifstofum sínum. Bréfið var dagsett 27. desember. Í því stóð að ég yrði að gera grein fyrir því hvers vegna ég hafi ekki skráð mig innan sjö daga frá dagsetningu bréfsins. Sjáum nú til… Það þyrfti þá að vera fyrir 2. janúar, eða daginn sem þeir opna næst. Einstaklega hugulsamt af þeim.
Ef til vill er ég að mála skrattann á vegginn. Hver veit nema þetta séu manneskjur sem starfa þarna? Manneskjur, með vott af skilningi og samúð.