Óværulaus
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Nýlega las ég grein á netinu þar sem nafn Sasser ormsins kom upp. Þá varð mér hugsað til þess að í um þrjú til fjögur ár hef ég sloppið við hvers kyns óværu á tölvunum mínum (Windows XP Home/Pro, Windows 2000). Vefþjónninn sem áður keyrði Windows 2000 var eina vélin sem fékk vírusvörn til afnota, þó ekki til annars en að sía póst sem streymdi þar í gegn. Það eina sem komist hefur inn hjá mér á þessum tíma var Sasser ormurinn, en þá var ég að setja upp XP Home SP1 og nettengdur á meðan. Mjög óheppilegt, því ormurinn var kominn inn nánast samtímis því sem uppsetningunni lauk. Sjálfur hef ég engin meðöl brúkað á borð við vírusvarnir og hreinsiforrit í fáein ár, með góðum árangri.
Ég frétti iðulega af fólki sem berst við alls kyns óværa á sínum Windows tölvum, allt frá svæsnustu vírusum til annarlegustu njósnara og laumufarþega. Stundum hefur mér heppnast að hreinsa nægilega vel til svo að tölvurnar séu nothæfar í einhvern tíma, en stundum er skaðinn þegar orðinn það mikill að ekkert gagnar nema forsnið harða disksins. Ég veit að næsta setning mun vafalítið vekja upp ýmsar spurningar og misgóð viðbrögð ýmissa lesenda, og því skal skýrt tekið fram að þetta eru aðeins getgátur og „tilviljanir„.
Nánast undantekningalaust hefur Internet Explorer verið aðalvafri viðkomandi tölvunotenda.
En hvað um hinar tölvurnar sem virðast einhvern veginn sleppa? Jú, þar liggur IE jafnan í dvala og aðrir vafrar á borð við Mozilla/Firefox, Opera og jafnvel Netscape brúkaðir. Raunar álít ég að ekki sé um neina tilviljun að ræða, þvert á móti líður mér jafnan eins og IE sé risavaxin flóðgátt ónota og pesta. Á vefnum „Vafrið hamingjusöm„ (browsehappy.com) má finna tengla í blaðagreinar sem og reynslusögur nokkurra tölvunotenda. Þessar greinar eiga það sameiginlegt að fjalla um hve mikill öryggisbrestur Internet Explorer raunverulega er. Að sjálfsögðu má ekki kenna Microsoft alfarið um vandann, því oft eru notendur svo grandalausir að í hvert sinn sem þeim er sagt frá lottóvinningi eða skemmtisiglingu um Karíbahafið smella þeir hiklaust á „Já„, „Amen„ og „OK„.
En hvað er til ráða? Microsoft er markaðsráðandi og IE algengasti vafrinn í notkun. Ég get fátt ímyndað mér annað en að fræða almenning um hætturnar og hvetja þá jafnvel til að nota aðra öruggari vafra á meðan þeir „komast til vits og ára„. Góð byrjun gæti til dæmis verið í tölvutímum grunnskóla eða á námskeiðum. Ég hvet mína nemendur til að nota aðra vafra en IE, og raunar kemst enginn upp með annað í tíma hjá mér.