Árssamantekt 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Hér á eftir fylgir stutt en hnitmiðuð samantekt á helstu atburðum þessa árs í lífi mínu.
Í janúar var viðmót vefdagbókarinnar íslenskað, þökk sé Binna. Tók tímabundið upp á því að mæta á júdóæfingar, en komst fljótt á þá skoðun að líkamsrækt fer ekki vel með reykingum (eða er það öfugt?). Þá keypti ég einnig annan bíl minn um ævina af gerðinni Hyundai Elantra.
Febrúar var áhugaverður að ýmsu leyti. Um skeið lagði ég fyrir mig kvennafar með misjöfnum árangri. Vefdagbókin fékk nýtt útlit, en þemað Connections var grunnurinn. Einnig spreytti ég mig lítillega á gerð smásagna, lauslega byggðar á dögum úr lífinu eða eintómum skáldskap. Stefna flutti af Gleráreyrum í Hafnarstrætið. Vefdagbókin var enn fremur gerð fyllilega XHTML 1.0 Strict samhæfð, ásamt hinum og þessum smá viðbótum. Þá skrifaði ég um kaffiraunir hjá Stefnu sem að mínu mati voru með skemmtilegri skrifum mínum það sem af er þessa árs. Vefdagbókin fékk einnig smá upplyftingu með ýmsum JavaScript og AJAX brellum. Ég fékk vistfangið ns1.iceware.net skráð fyrir IP töluna sem ég keypti af Vodafone. Fyrir vikið varð nafnaþjónninn viðurkenndur af ISNIC.
Í mars keypti ég mín fyrstu gleraugu sem og handfrjálsan handbúnað. Hvorutveggja er nánast í daglegri notkun enn. Myndasafnið var endurvakið í formi Coppermine Photo Gallery, og vefdagbókin birt með viðeigandi MIME strengjum (þ. e. application/xhtml+xml fyrir þá vafra sem það styðja, annars text/html). Þá komst ég einnig að þeirri niðurstöðu að maður á alltaf að hafa vaðið fyrir neðan sig og gera starfssamninga. Ég er gramur og snýti enn rauðu og bláu.
Apríl var aðeins tilbrigði við stef. Ég keypti þó Korg AX1500G fjölbrellutæki við gítarana.
Maí einkenndist lítið eitt af óvæntum bíltúrum og myndatökum í næsta nágrenni Akureyrar. Ég varð 23 ára. Stutt lesendabréf var sent Morgunblaðinu um íþróttaumfjöllun fjölmiðla sem var svo birt í blaðinu þann 21. maí. 25. maí var brotist inn á heimili okkar í Hafnarstrætinu, ég og faðir minn barðir og brotnir, og fingur klipptur af hönd vinar okkar. Árásin var að ástæðulausu og framkvæmd af þremur mönnum í áfengis- og fíkniefnavímu, „góðkunningjum lögreglunnar„. Leitt hve lögreglan ratar alltaf í slæman félagsskap.
Júní var hljóðlátur mánuður sem fór að mestu í rannsóknir á sjúkrahúsi, skýrslugerð, afslöppun og til að sleikja sárin. Í lok mánaðarins var ég svo nefbrotinn þegar ég var sleginn í misgripum fyrir annan mann á Oddvitanum. Seggurinn baðst afsökunar er hann áttaði sig á mistökunum og gaf mér bjór. Þá kynntist ég einnig Kollu.
Júlí. Ja, ég eyddi býsna mörgum dögum á Dalvík. Spilaði meðal annars og söng í Bakaríinu (þorpskránni), en aðallega var ég þar til að aðstoða kunningja við húsasmíðar, flísalagnir og fleira því tengt. Þá lauk einnig störfum mínum hjá Stefnu.
Í ágúst fórum við Kolla okkar fyrstu ferð saman til Reykjavíkur.
September. Ég tók að mér kennslu vefforritunar (PHP og MySQL) á vegum Tölvuskólans Þekkingu. Fékk tvo hópa grunnskólanema til „meðferðar„, en þetta var þeirra valáfangi. Fljótt kom í ljós að kennarastarfið hentar mér vel. Ég er ánægður.
Í október gekk vinur minn Jan í það heilaga með unnusti sinni Halldóru. Ég seldi Hyundai bílinn minn, og keypti VW Passat. Lenti í umtalsverðum vandræðum með net- og símasamband vegna lélegrar símalínu í og að byggingunni. Pyngjan léttist umtalsvert, og ég í kjölfarið.
Nóvember einkenndist að miklu leyti til af tilraunum mínum með ýmsar bjór- og öltegundir.
Desember getið þið lesið um hér.
Gott ár? Kannski. Fjölbreytt? Tvímælalaust!
31. desember 2006 kl. 12:16
Þetta hefur verið ár af stærri gerðinni hjá þér frændi!
Gleðilegt nýtt ár.
Svo er bara að bíða og sjá hvað gerist 2007
31. desember 2006 kl. 13:23
Tja, já. Hvað sem gerist, þá er ég við nánast öllu viðbúinn. Ef það versnar, þá segi ég upp!
31. desember 2006 kl. 17:03
Afar áhugaverð samantekt hjá þér Siggi. Vel skrifað.
2. janúar 2007 kl. 15:05
Þetta er vel skrifað hjá þér
Vona að þetta ár verði jafnvel betra en hið gamla
2. janúar 2007 kl. 15:42
Það vona ég líka. Þrátt fyrir ýmsar óvæntar uppákomur var 2006 ekki svo slæmt, og lærdómsríkt í meira lagi.
Þakkir fyrir athugasemdirnar. Þær gleðja mig alltaf.