25. des. 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn
Prenta
|
Senda færslu
|
4 athugasemdir
Nú er ég saddur og sæll. Ég borðaði eins og svín af svínslega góðu svíninu hennar Dóru föðursystur í kvöld. Í þetta sinn undirbjó ég mig þó vel, því ég fjárfesti í lítið eitt víðari buxum í höfuðborginni um daginn. Um síðustu jól brakaði og brast í öllum saumum, en það slapp til í þetta sinn. Talandi um að læra af reynslunni. Kisinn minn hann Ares var að venju boðinn í jólamatinn líka. Hann skemmti sér ágætlega með heimasætunni Viktoríu. Hún er þó aðeins yngri og umtalsvert meiri leikur í henni en svo ráðsettum og virðulegum ketti sem Aresi. Þau brunuðu fram og aftur og á milli hæða sem lítil járnbrautalest.
Pakkar voru opnaðir við mikinn fögnuð að venju. Í fyrsta sinn í fleiri ár fékk ég bækur. Ekki bara hvaða bækur sem er, heldur bækur sem mig langaði virkilega til að eignast. Meðal annars fékk ég Webster’s Unabridged Dictionary (Deluxe), báðar Eragon bækurnar saman í boxi, og Bono um Bono. Þá slæddist eitthvað með af fötum, konfekti og öðru klassísku. Ég fékk minn langþráða CK rakspíra, Obsession, The Road to Escondido, og Dead Man’s Chest. Mín kæra Ingibjörg gaf mér einnig Lottó leikspjald sem hún var búin að merkja vinningstölur næstu átta vikna. Í sem fæstum orðum, þá hlotnaðist mér flest það er ég taldi upp á óskalistanum. 
Ég er sæll með mitt og vona að sem flestir séu sama sinnis.
Þessi færsla hefur verið lesin 353 sinnum
24. des. 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn
Prenta
|
Senda færslu
|
Ein athugasemd
Ég óska ykkur gleðilegrar hátíðar, farsældar og friðar á komandi ári. Með kærri þökk fyrir liðnar stundir og von um fleiri!
Þessi færsla hefur verið lesin 284 sinnum
23. des. 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Tölvur & tækni
Prenta
|
Senda færslu
|
2 athugasemdir
Ef þú þarft að nota WM/Picture til að sýna fisk, þarftu að gefa bPictureType gildið 17. Ég veit ekki hvers vegna, en svona er þetta á vef MSDN.
Þessi færsla hefur verið lesin 312 sinnum
21. des. 2006
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn,
Glens
Prenta
|
Senda færslu
|
6 athugasemdir
Ef ég aðeins hefði tekið öllum þeim tilboðum sem mér hafa borist í tölvupósti það sem af er þessa árs… Þá hefði ég að minnsta kosti hálfs meters langan getnaðarlim, ætti lífstíðarbirgðir af Viagra og Valium, hlutabréf í flestum fyrirtækjum heims, fasteignir út um allan heim, og ef ég þyrfti að ferðast eitthvað, yrði það með einhverju skemmtiferðaskipinu sem ég hef unnið ferð með.
Þessi færsla hefur verið lesin 834 sinnum
20. des. 2006
Fjórir dagar til jóla, og ég er ekki enn búinn að kaupa né pakka inn síðustu gjöfunum. Útlit er fyrir að ég standi við heit mitt og geri það á Þorláksmessu. Á mánudagsmorgunn dreif ég mig til Dallas og sat þar að forritun, kaffi og kjaftagangi hjá Oliver. Mér varð ágætlega úr verki á þeim bæ, og lagði því af stað aftur til Akureyrar laust upp úr klukkan fjögur. Þá var komin meiriháttar hláka með tilheyrandi roki og rigningu. Bíllinn dansaði allt frá hægum, sveiflukenndum valsi upp í örgustu rúmbu og salsa. Eftir klukkutíma ferðalag komst ég heim slysalaust, og kvöldið fór í kaffiþamb og kjaftagang á Café Amour.
Lesa meira af „Ys og þys„
Þessi færsla hefur verið lesin 262 sinnum