janúar 2007


Síðustu færslu sama efnis lauk með hugmyndum um Old Speckled Hen og Morland Hen’s Tooth. Það er svolítið liðið frá því ég smakkaði þessar tegundir, en man óljóst að Old Speckled Hen var nokkuð góður. Léttur og lítið eitt freyðandi með keim af malti og karamellu. Hanatönninni man ég lítið eftir. Sennilega ekki fallið í eins góðan jarðveg og gamli blettótti haninn.

Í dag er ég með þriðju öltegundina frá Greene King; Fireside. Flaskan var opnuð við mikinn hátíðleik yfir ljúfum tónum meistara Claptons. Mjöðurinn rann undurhægt í glasið, nánast rúbínrauður. Fyrsti sopinn fyllti mig slíkri unaðskennd að ég þorði varla að taka annan. Mjúkur, ávaxtaríkur, vottur af malti og humlum. Ólíkur Strong Suffolk. Minnir á Ruddle’s County, nema hvað Fireside er laus við beiskjuna og heldur sætari. Sannkölluð guðaveig.

Jan og ég kláruðum Throne of Bhaal aukapakkann á föstudagskvöldið. Gekk mun betur en síðast. Demogorgon féll að mig minnir í annarri eða þriðju tilraun, og jafnvel Melissan lést sæmilega fljótt. Höfum hugsað okkur að taka upp Neverwinter Nights næst. Hann virðist bjóða upp á óendanlega marga möguleika í netspilun. Vona að við getum fylgt söguþræðinum eftir ef við spilum hann saman sem sitthvor persónan (cooperative).

Síðan þá hef ég dundað mér í ýmsu. Meðal annars losaði ég mig við gamla MRTG mælingatólið og setti Cacti upp í staðinn. Nú get ég auðveldlega séð á töflum og gröfum álag á vefþjóninum, og fylgst með netumferð um aðalgáttina. Er enn að grufla í hinum og þessum RFC skrám til að finna ítarlegri upplýsingar um ýmsa SNMP staðla. Helst vildi ég geta fengið upplýsingar um hverja IP tölu fyrir sig.

Einnig hef ég verið að þróa gervigreindina í AQ2 „moddinum“ mínum. Það gengur bærilega. Leikmennirnir eru farnir að hreyfa sig meira á meðan á skotbardögum stendur, og svei mér ef þeir eru ekki að verða nokkuð færir í að opna hurðir og hlera. Að minnsta kosti betri en þeir voru. Skyndilega langaði mig til að geta notað XML í þessu öllu. Sótti Expat og bjó til viðmót í Q2 biðlaranum mínum sem hver leikur hefur síðan aðgang að (biðlarinn minn hefur ekki stutt gömlu Quake II samskiptareglurnar um hríð, svo það gildir einu). Þegar það var allt komið á sinn stað, bjó ég til einfalt XML skjal til að hlaða inn leikmönnum sjálfkrafa. Þannig er einfalt að gefa fyrirfram ákveðnum fjölda leikmanna nöfn, raða í liðin tvö, velja vopn og aukahluti, og hve færir þeir eru.

Orðrýnirinn í Firefox stakk upp á „Uxakerru“ í stað Quake. Hann er skemmtilegur.

Enn er von fyrir okkur örmu þræla tóbaksfíknarinnar. Nú hefur nefnilega uppgötvast lítil „eyja“ í heilanum sem virðist stjórna slíkri fíkn. Þannig er að reykingamaður mikill fékk heilablóðfall, en lét af þeim ósið eins og hendi væri veifað eftir blóðfallið. Við sneiðmyndatökur komu í ljós skemmdir á fyrrnefndri „eyju“. Lesa grein.

Ég bíð spenntur eftir næstu auglýsingum apótekanna. Get ímyndað mér ýmislegt. „Við berjum þig í höfuðið, þú hættir að reykja“, eða jafnvel „Skemmum heilann, björgum lungunum“. Er á báðum áttum með þessa lausn. Vonandi tekst þeim að finna betri aðferðir, t. a. m. í formi lyfja.

Báðar útgáfurnar komu svo fljótt á eftir 2.0.6 að ég gaf mér ekki tíma í að skrifa um þær. Svei og skamm. 2.0.7 samanstóð fyrst og fremst af lagfæringum. 2.1 er aftur á móti viðameiri. Á meðal nýrra möguleika í WordPress 2.1 má nefna:

  • Sjálfvirk vistun færsla
  • Skipta má á milli einfalds of WYSIWYG viðmóta með einum hnappi
  • Nýi WYSIWYG ritillinn býður upp á orðrýni og leiðréttingu ritvilla
  • Síður hafa sömu eiginleika og færslur, þ. e. þær má vista sem drög eða einkamál

Ég á enn eftir að sækja og setja upp nýjustu útgáfuna. Spurning hvernig fer með uppfærslu vefdagbókarinnar.

Fyrir tæpum hálftíma hringdi tæknimaður Vodafone í mig og flutti skemmtileg tíðindi. Búið er að úthluta mér og ganga frá fjórum IP tölum að auki við þá einu sem ég hafði fyrir. Nú eru tölvurnar fjórar komnar með eigin IP tölur. Minn vefþjónn heldur sinni óbreyttri. Vefþjónn annars aðila fékk sína eigin, sem og vinnuvélin og „gestavélin“. Þá er ein laus IP tala eftir sem ég skellti á fartölvuna frekar en ekkert. Nú lítur dæmið nokkurn veginn svona út:

  • ns1.iceware.net (vélin sem hýsir þennan vef meðal annars) – 194.144.41.96
  • asgard.iceware.net (vinnuvélin) – 193.4.247.204
  • niflheim.iceware.net („gestavélin“) – 193.4.247.205
  • alfheim.iceware.net (annar vefþjónn) – 193.4.247.206
  • jotunheim.iceware.net (laus / fartölva) – 193.4.247.207

Tók mig rétt um hálftíma að setja upp viðeigandi bakfærslur, breyta tilvísunum á nafnaþjóninum, endurstilla netbeininn, og svo framvegis. Ég er ánægður með verkið.

Eftirfarandi síða »