Netbeinir
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Í dag fjárfesti ég í nýjum netbeini af gerðinni ZyXEL P-660 HW-61. Ástæðan er sú að gamli Linksys WAG54G v2 beinirinn styður ekki svonefnt Multi-NAT. Með því getur hann tekið við fleiri en einni WAN IP tölu, og tengt við tölvur á staðarnetinu. Næst á dagskrá er að fjárfesta í þremur IP tölum til viðbótar, og úthluta hverri tölvu á staðarnetinu sinni eigin.
Ég ákvað að fara þessa leið fremur en að búa mér til eigin Linux netbeini. Það er nóg að hafa fjórar tölvur í gangi samtímis.
Þörfin er ekki síðri en skemmtunin og fróðleiksfýsnin. Eftir að Windows vefþjónninn bættist við hef ég bjargað mér fyrir horn með smá mod_rewrite svindli á Linux vefþjóninum. Það nægir þó ekki lengur af ýmsum ástæðum sem ég nenni ekki að útlista nánar sem stendur. Þið megið reyna að ímynda ykkur þær í staðinn.