Húsmóðurlegur drekabani
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Undanfarna viku hef ég verið húsmóðurlegur í meira lagi. Lagað til, ryksugað, þurrkað af, vaskað upp, þvegið þvott, straujað, og sinnt flestum þeim störfum er falla húsmæðrum í skaut. Ofninn er þó enn bilaður, svo ég hef ekkert getað bakað. Ekki einu sinni vandræði. Var búinn að gleyma hvað það er notalegt að vera svona einn og út af fyrir sig með kisa gamla. Í glugganum situr Ares og fjargviðrast út af veðrinu. Honum líkar hríðin ekki hót.
Skeggsnyrtirinn varð straumlaus í miðju verki í morgun. Afundinn og loðinn öðru megin setti ég tækið í hleðslu og hellti upp á kaffi. Skyndilega varð mér hugsað til bókanna um Bör Börsson og Kapitólu. Það væri gaman að rifja þær upp. Kapitólu fann ég á frummálinu hér. Tryllitækið komst af stað aftur, og reif, sleit og skar ullina af hinum helmingi andlitsins.
Í gær lauk merkum áfanga í Baldur’s Gate II: The Throne of Bhaal. Hugsa að Jan og ég hljótum að teljast til reyndra drekabana eftir ævintýri gærkvöldsins. Ætli ég sé afkomandi nafna míns Fáfnisbana? Þá ætla ég aldrei að sofa án þess að hafa andvara á mér.
21. janúar 2007 kl. 4:28
Ertu einn heima. Hvar er gamli maðurinn ?