23. jan. 2007
Staðarnetið – framhald
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Fyrir tæpum hálftíma hringdi tæknimaður Vodafone í mig og flutti skemmtileg tíðindi. Búið er að úthluta mér og ganga frá fjórum IP tölum að auki við þá einu sem ég hafði fyrir. Nú eru tölvurnar fjórar komnar með eigin IP tölur. Minn vefþjónn heldur sinni óbreyttri. Vefþjónn annars aðila fékk sína eigin, sem og vinnuvélin og „gestavélin„. Þá er ein laus IP tala eftir sem ég skellti á fartölvuna frekar en ekkert. Nú lítur dæmið nokkurn veginn svona út:
- ns1.iceware.net (vélin sem hýsir þennan vef meðal annars) – 194.144.41.96
- asgard.iceware.net (vinnuvélin) – 193.4.247.204
- niflheim.iceware.net („gestavélin„) – 193.4.247.205
- alfheim.iceware.net (annar vefþjónn) – 193.4.247.206
- jotunheim.iceware.net (laus / fartölva) – 193.4.247.207
Tók mig rétt um hálftíma að setja upp viðeigandi bakfærslur, breyta tilvísunum á nafnaþjóninum, endurstilla netbeininn, og svo framvegis. Ég er ánægður með verkið.
Þessi færsla hefur verið lesin 502 sinnum
23. janúar 2007 kl. 21:00
Vá hvað það var frekar flókið að lesa þetta:)
23. janúar 2007 kl. 21:03
Þetta var aðeins brot af því besta. Bíddu þar til ég fer að skrifa um uppsetningu netbeinisins og nafnaþjónsins.
24. janúar 2007 kl. 19:34
Sakna þín sæti
26. janúar 2007 kl. 23:46
til hamingju með þetta. Náðir þú að leysa þetta með einhverjum „einkaréttar„ router eða er þetta allt gert með hjá iptables ?
Bíð spenntur eftir skrifunum um uppsetninguna
27. janúar 2007 kl. 0:42
Takk! Ódyr ZyXEL Prestige 660HW-61 leysti málið. Hann býður upp á Multi-NAT með alveg frábærum stillimöguleikum.