24. jan. 2007
WordPress 2.0.7 & 2.1.0
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækni, WordPressPrenta | Senda færslu | 4 athugasemdir
Báðar útgáfurnar komu svo fljótt á eftir 2.0.6 að ég gaf mér ekki tíma í að skrifa um þær. Svei og skamm. 2.0.7 samanstóð fyrst og fremst af lagfæringum. 2.1 er aftur á móti viðameiri. Á meðal nýrra möguleika í WordPress 2.1 má nefna:
- Sjálfvirk vistun færsla
- Skipta má á milli einfalds of WYSIWYG viðmóta með einum hnappi
- Nýi WYSIWYG ritillinn býður upp á orðrýni og leiðréttingu ritvilla
- Síður hafa sömu eiginleika og færslur, þ. e. þær má vista sem drög eða einkamál
Ég á enn eftir að sækja og setja upp nýjustu útgáfuna. Spurning hvernig fer með uppfærslu vefdagbókarinnar.
Þessi færsla hefur verið lesin 736 sinnum
24. janúar 2007 kl. 23:54
Já, spurning hvort að ég eigi nokkurn tímann eftir að botna eitthvað í þessu bloggi!
25. janúar 2007 kl. 0:00
Einhvern daginn skal ég kynna unaðssemdir WordPress fyrir þér.
29. janúar 2007 kl. 14:30
Þú verður endilega að setja þetta upp og láta vita hvernig þetta kemur út! Samkvæmt WP-genginu eru breytingarnar töluverðar á ýmsum sviðum og hætt við að íslenska þurfi stjórnborðið upp á nýtt. Og þeir sem hengt hafa margar viðbætur utan á grunnkerfið geta eflaust búist við að eitthvað hætti að virka.
29. janúar 2007 kl. 14:33
Ég kem að því einhvern daginn. Ég á þegar í nægum vandræðum með að halda utan um íslensku þýðinguna (upphaflega fengin frá Binna) á milli útgáfa.