Enn er von fyrir okkur örmu þræla tóbaksfíknarinnar. Nú hefur nefnilega uppgötvast lítil „eyja„ í heilanum sem virðist stjórna slíkri fíkn. Þannig er að reykingamaður mikill fékk heilablóðfall, en lét af þeim ósið eins og hendi væri veifað eftir blóðfallið. Við sneiðmyndatökur komu í ljós skemmdir á fyrrnefndri „eyju„. Lesa grein.

Ég bíð spenntur eftir næstu auglýsingum apótekanna. Get ímyndað mér ýmislegt. „Við berjum þig í höfuðið, þú hættir að reykja„, eða jafnvel „Skemmum heilann, björgum lungunum„. Er á báðum áttum með þessa lausn. Vonandi tekst þeim að finna betri aðferðir, t. a. m. í formi lyfja.