Fjölbreytni
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Jan og ég kláruðum Throne of Bhaal aukapakkann á föstudagskvöldið. Gekk mun betur en síðast. Demogorgon féll að mig minnir í annarri eða þriðju tilraun, og jafnvel Melissan lést sæmilega fljótt. Höfum hugsað okkur að taka upp Neverwinter Nights næst. Hann virðist bjóða upp á óendanlega marga möguleika í netspilun. Vona að við getum fylgt söguþræðinum eftir ef við spilum hann saman sem sitthvor persónan (cooperative).
Síðan þá hef ég dundað mér í ýmsu. Meðal annars losaði ég mig við gamla MRTG mælingatólið og setti Cacti upp í staðinn. Nú get ég auðveldlega séð á töflum og gröfum álag á vefþjóninum, og fylgst með netumferð um aðalgáttina. Er enn að grufla í hinum og þessum RFC skrám til að finna ítarlegri upplýsingar um ýmsa SNMP staðla. Helst vildi ég geta fengið upplýsingar um hverja IP tölu fyrir sig.
Einnig hef ég verið að þróa gervigreindina í AQ2 „moddinum„ mínum. Það gengur bærilega. Leikmennirnir eru farnir að hreyfa sig meira á meðan á skotbardögum stendur, og svei mér ef þeir eru ekki að verða nokkuð færir í að opna hurðir og hlera. Að minnsta kosti betri en þeir voru. Skyndilega langaði mig til að geta notað XML í þessu öllu. Sótti Expat og bjó til viðmót í Q2 biðlaranum mínum sem hver leikur hefur síðan aðgang að (biðlarinn minn hefur ekki stutt gömlu Quake II samskiptareglurnar um hríð, svo það gildir einu). Þegar það var allt komið á sinn stað, bjó ég til einfalt XML skjal til að hlaða inn leikmönnum sjálfkrafa. Þannig er einfalt að gefa fyrirfram ákveðnum fjölda leikmanna nöfn, raða í liðin tvö, velja vopn og aukahluti, og hve færir þeir eru.
Orðrýnirinn í Firefox stakk upp á „Uxakerru„ í stað Quake. Hann er skemmtilegur.
31. janúar 2007 kl. 10:34
Er hægt að spila NWN aðalcampaignið í co-op? úff hvað ég er feginn að hafa aldrei dottið í svona netspilunar möguleika…. :p
31. janúar 2007 kl. 10:41
Já, það er hægt. Þegar þú ert búinn að spila hann einu sinni, og klára endurtekn… ég meina aukapakkana, þá hugsa ég að smá „coop„ saki ekki.