Öl og bjór III
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Matur & vínPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Síðustu færslu sama efnis lauk með hugmyndum um Old Speckled Hen og Morland Hen’s Tooth. Það er svolítið liðið frá því ég smakkaði þessar tegundir, en man óljóst að Old Speckled Hen var nokkuð góður. Léttur og lítið eitt freyðandi með keim af malti og karamellu. Hanatönninni man ég lítið eftir. Sennilega ekki fallið í eins góðan jarðveg og gamli blettótti haninn.
Í dag er ég með þriðju öltegundina frá Greene King; Fireside. Flaskan var opnuð við mikinn hátíðleik yfir ljúfum tónum meistara Claptons. Mjöðurinn rann undurhægt í glasið, nánast rúbínrauður. Fyrsti sopinn fyllti mig slíkri unaðskennd að ég þorði varla að taka annan. Mjúkur, ávaxtaríkur, vottur af malti og humlum. Ólíkur Strong Suffolk. Minnir á Ruddle’s County, nema hvað Fireside er laus við beiskjuna og heldur sætari. Sannkölluð guðaveig.