Þennan dag, fyrir 102 árum, fæddist Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Maðurinn á bakvið verk á borð við Gullna hliðið og söguna Sólon Íslandus um Sölva Helgason. 10 ljóðabækur sem allar nutu vinsælda og hylli. Mörg ljóða hans urðu sem gamlir heimagangar. Hver þekkir ekki að minnsta kosti fyrstu línurnar úr kvæðum á borð við Til eru fræ, Konan sem kyndir ofninn minn og Kvæðið um fuglana? Í tilefni afmælis staðarskáldsins birti ég í mesta leyfisleysi tvö ljóð.
janúar 2007
Húsmóðurlegur drekabani
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Undanfarna viku hef ég verið húsmóðurlegur í meira lagi. Lagað til, ryksugað, þurrkað af, vaskað upp, þvegið þvott, straujað, og sinnt flestum þeim störfum er falla húsmæðrum í skaut. Ofninn er þó enn bilaður, svo ég hef ekkert getað bakað. Ekki einu sinni vandræði. Var búinn að gleyma hvað það er notalegt að vera svona einn og út af fyrir sig með kisa gamla. Í glugganum situr Ares og fjargviðrast út af veðrinu. Honum líkar hríðin ekki hót.
Skeggsnyrtirinn varð straumlaus í miðju verki í morgun. Afundinn og loðinn öðru megin setti ég tækið í hleðslu og hellti upp á kaffi. Skyndilega varð mér hugsað til bókanna um Bör Börsson og Kapitólu. Það væri gaman að rifja þær upp. Kapitólu fann ég á frummálinu hér. Tryllitækið komst af stað aftur, og reif, sleit og skar ullina af hinum helmingi andlitsins.
Í gær lauk merkum áfanga í Baldur’s Gate II: The Throne of Bhaal. Hugsa að Jan og ég hljótum að teljast til reyndra drekabana eftir ævintýri gærkvöldsins. Ætli ég sé afkomandi nafna míns Fáfnisbana? Þá ætla ég aldrei að sofa án þess að hafa andvara á mér.
Stjörnuspá
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Stjörnuspá mbl.is fyrir naut (og kálfa):
Nautið er af mörgum kynslóðum. Innra með því búa sex ára, þriggja ára og 72 ára persónur sem berjast um það í dag, hvað það merkir að haga sér í samræmi við aldur.
Það er ýmist í ökkla eða eyra. Geri ráð fyrir að hrukkudýrið hafi vinninginn. Þessi sex ára vaknar bara þegar ég leik mér við Jan. Er ekki búinn að uppgötva þann þriggja ára enn.
Frumraun
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Í gær lagði ég stutta könnun fyrir nemendur mína í vefforritun. Hún samanstóð af átta spurningum (að undirspurningum undanþegnum) sem svara þurfti á skilmerkilegan hátt. Engar krossaspurningar hér, takk fyrir! Piltarnir tóku uppátækinu furðu vel þrátt fyrir að ég gæfi þeim enga viðvörun. Niðurstöðurnar komu mér á óvart. Tveir skiluðu nánast auðu úr 12 og 14 manna hópum. Hinir stóðu sig misjafnlega, líkt og gengur og gerist. Flestir komu þó út með um eða yfir 60% svör rétt. Enginn svaraði öllum spurningum rétt. Þegar á heildina er litið er ég ánægður með árangur krakkanna. Þó má lengi gera betur. Ég velti fyrir mér hvort kennarastaðan henti fólki með einskonar fullkomnunaráráttu.
Síðar um daginn hitti ég frænda minn og fyrrum kennara, Kristinn G. Jóhannsson. Það voru ánægjulegir endurfundir. Deginum lauk í félagsskap Jans og leikjaspilun.
Efni vefdagbóka
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Rétt í þessu las ég færslu í vefdagbók félaga míns, Helga. Hún vakti mig til umhugsunar um efni og innihald vefdagbóka.
Lesa meira af „Efni vefdagbóka„