28. feb. 2007
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn
Prenta
|
Senda færslu
|
11 athugasemdir
Dreif mig á fætur kl. 6 í gærmorgun. Kominn til Dalvíkur fyrir 8:00. Síðbúinn hádegisverður, skottúr til Akureyrar og aftur út á Dalvík eftir hugbúnaði, og pönnukökur lífguðu upp á annars tilbreytingasnauðan vinnudag. Kom aftur til Akureyrar rétt upp úr 20 um kvöldið. Leið mín lá svo nánast beint á Kaffi Akureyri með Kollu og Bylgju. Það var gaman.
Núna er ég orðinn þrælkvefaður með tilheyrandi kuldaskjálftum og svitaböðum á víxl. Get ímyndað mér að svona líði grýlukerti hituðu yfir loga. Síður en svo ánægjuleg byrjun á deginum. Ef ég verð sæmilega hraustur í fyrramálið ætla ég að endurtaka Dalvíkurferðina. MCSA námskeiðið hefst á föstudaginn. Vildi gjarnan geta sleppt námskeiðinu og undið mér beint í prófin. Námskeiðsframhald á laugardagsmorgunn. Ef heilsunni hefur enn ekki hrakað þá, er ætlunin að keyra til Reykjavíkur eftir hádegi. Kollu langar nefnilega í mat frá Rikki Chan.
Þessi færsla hefur verið lesin 611 sinni
26. feb. 2007
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Tónlist
Prenta
|
Senda færslu
|
4 athugasemdir
Það er tiltölulega stutt síðan Bylgja benti mér á þessa afburða tónlistarkonu frá Írlandi. Lagið sem kom mér af stað ber titilinn Caribbean Blue. Síðar gerði ég þá skemmtilegu uppgötvun að eitthvað af tónlist hennar rataði í kvikmyndir Peter Jackson um Hringadróttinssögu, en þær eru í miklu uppáhaldi. Ég átti svo langt og áhugavert samtal á kaffihúsi nýverið við írskan félaga minn. Hann lofaði konuna og var eilítið hneykslaður að ég hefði ekki kynnst tónlist hennar fyrr.
Nú er hún í nær látlausri spilun hjá mér. Meðal stakra laga sem mér eru einkar hugleikin má nefna áðurnefnt Caribbean Blue, Book Of Days, Anywhere Is, Only If, Lothlórien og Marble Halls. Svo skemmtilega vill til að fyrstu fjögur lögin koma einmitt fyrir í sömu röð á geisladiskinum Paint The Sky With Stars.
Þessi færsla hefur verið lesin 669 sinnum
25. feb. 2007
Á föstudagskvöld fór ég kl. 21:00 út í skautahöll. Var þar til miðnættis við uppsetningu tölvubúnaðar fyrir dómarakerfið frá ISU. Við tókum svo tölvurnar aftur niður og gengum frá þeim í kassana til varnar rakaskemmdum. Um morguninn þyrfti því ekkert að gera nema taka þær upp og tengja aftur.
Á laugardagsmorgunn var ég mættur kl. 7:30. Tókum tölvurnar upp og tengdum. Því miður gafst ekki tími til að prófa allt áður en keppni hófst. Því fór svo að dómarar þurftu að handskrifa tölur sínar fyrir fyrsta keppanda. Eftir það fengum við svo kerfið til að virka, og allt gekk eins og í sögu. Stelpurnar tóku sig vel út á svellinu að venju. Ingibjörg stóð sig með prýði í Novice flokknum. Ég fór svo heim kl. 17:00, kaldur, þreyttur og stirður. Er viss um að jafnvel beinmergurinn hafi frosið þarna yfir daginn. Skreið undir sæng og ætlaði að leggja mig í smá stund. Það fór ekki betur en svo að ég steinsofnaði. Vaknaði aftur um miðnætti, og gat ómögulega sofnað aftur fyrr en á milli 3 og 4 í nótt.
Í morgun mætti ég á sama tíma og endurtók leik fyrri dagsins. Í þetta skiptið virkaði þó allt frá upphafi. Í hléi á milli keppnisflokka tókum við svo öll tækin úr sambandi og gengum frá í kassana. Kerfið er ekki notað fyrir yngstu keppendurnar.
Mótið var í alla staði vel heppnað og afar skemmtilegt. Ég er þó svolítið feginn að þetta sé búið að sinni. Geri ráð fyrir að þiðna með vorinu.
Þessi færsla hefur verið lesin 473 sinnum
23. feb. 2007
Gleymast seint… Ég rakst á vinkonu í kvöld sem ég hef hvorki heyrt né séð frá því á miðjum unglingsárunum. Samtalið náði þó aldrei lengra en „sæl„ og „vertu sæl„, því ég var á hraðferð með Kollu og Bylgju. Þegar ég kom heim og leit á vefdagbókina, sá ég athugasemd frá annarri vinkonu frá sama tíma. Sú villtist hingað fyrir tilviljun. Að lokum brá ég mér á vef héraðsdómstólanna og blöskraði hve mörg nöfn ég þekkti á dagskrá næstu vikna.
Annars hefur dagurinn verið fremur róletur. Enn hálf utangátta eftir vitnisburðinn og því lítið orðið úr verki. Skrapp á kaffihús með Kollu og Bylgju. Skemmtum okkur ágætlega yfir hjali á léttari nótunum. Er að safna kjarki og þreki í að uppfæra vefdagbókina.
Þessi færsla hefur verið lesin 479 sinnum
21. feb. 2007
Í morgun fór ég fyrir héraðsdóm til að bera vitni vegna hrottalegrar líkamsárásar þann 25. maí 2006. Ég var bæði spenntur og óundirbúinn, og almennt ekki vel fyrir kallaður. Málflutningur minn stóðst þó fyllilega samanburð við lögregluskýrslu tekna sama dag og atburðurinn átti sér stað. Því verður þó ekki neitað að smáatriðunum sem ég mundi hafi fækkað svolítið. Það var sérstök upplifun að vera þarna og fá að sjá árásaraðilana aftur. Fjarri því að vera notalegt. Er samt nokkuð ánægður og vona að þessi dagur marki lok málsins.
Þessi færsla hefur verið lesin 520 sinnum