23. feb. 2007
Gömul kynni
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Gleymast seint… Ég rakst á vinkonu í kvöld sem ég hef hvorki heyrt né séð frá því á miðjum unglingsárunum. Samtalið náði þó aldrei lengra en „sæl„ og „vertu sæl„, því ég var á hraðferð með Kollu og Bylgju. Þegar ég kom heim og leit á vefdagbókina, sá ég athugasemd frá annarri vinkonu frá sama tíma. Sú villtist hingað fyrir tilviljun. Að lokum brá ég mér á vef héraðsdómstólanna og blöskraði hve mörg nöfn ég þekkti á dagskrá næstu vikna.
Annars hefur dagurinn verið fremur róletur. Enn hálf utangátta eftir vitnisburðinn og því lítið orðið úr verki. Skrapp á kaffihús með Kollu og Bylgju. Skemmtum okkur ágætlega yfir hjali á léttari nótunum. Er að safna kjarki og þreki í að uppfæra vefdagbókina.
Þessi færsla hefur verið lesin 479 sinnum
24. febrúar 2007 kl. 3:02
Já, takk kærlega fyrir kaffið í gær, það var óskaplega skemmtilegt að hitta þig aftur
24. febrúar 2007 kl. 3:05
Þakka sömuleiðis! Ég hefði gaman af að endurtaka kvöldskemmtunina. Naut eru vanaföst.