Á föstudagskvöld fór ég kl. 21:00 út í skautahöll. Var þar til miðnættis við uppsetningu tölvubúnaðar fyrir dómarakerfið frá ISU. Við tókum svo tölvurnar aftur niður og gengum frá þeim í kassana til varnar rakaskemmdum. Um morguninn þyrfti því ekkert að gera nema taka þær upp og tengja aftur.

Á laugardagsmorgunn var ég mættur kl. 7:30. Tókum tölvurnar upp og tengdum. Því miður gafst ekki tími til að prófa allt áður en keppni hófst. Því fór svo að dómarar þurftu að handskrifa tölur sínar fyrir fyrsta keppanda. Eftir það fengum við svo kerfið til að virka, og allt gekk eins og í sögu. Stelpurnar tóku sig vel út á svellinu að venju. Ingibjörg stóð sig með prýði í Novice flokknum. Ég fór svo heim kl. 17:00, kaldur, þreyttur og stirður. Er viss um að jafnvel beinmergurinn hafi frosið þarna yfir daginn. Skreið undir sæng og ætlaði að leggja mig í smá stund. Það fór ekki betur en svo að ég steinsofnaði. Vaknaði aftur um miðnætti, og gat ómögulega sofnað aftur fyrr en á milli 3 og 4 í nótt.

Í morgun mætti ég á sama tíma og endurtók leik fyrri dagsins. Í þetta skiptið virkaði þó allt frá upphafi. Í hléi á milli keppnisflokka tókum við svo öll tækin úr sambandi og gengum frá í kassana. Kerfið er ekki notað fyrir yngstu keppendurnar.

Mótið var í alla staði vel heppnað og afar skemmtilegt. Ég er þó svolítið feginn að þetta sé búið að sinni. Geri ráð fyrir að þiðna með vorinu.