Það er tiltölulega stutt síðan Bylgja benti mér á þessa afburða tónlistarkonu frá Írlandi. Lagið sem kom mér af stað ber titilinn Caribbean Blue. Síðar gerði ég þá skemmtilegu uppgötvun að eitthvað af tónlist hennar rataði í kvikmyndir Peter Jackson um Hringadróttinssögu, en þær eru í miklu uppáhaldi. Ég átti svo langt og áhugavert samtal á kaffihúsi nýverið við írskan félaga minn. Hann lofaði konuna og var eilítið hneykslaður að ég hefði ekki kynnst tónlist hennar fyrr.
Nú er hún í nær látlausri spilun hjá mér. Meðal stakra laga sem mér eru einkar hugleikin má nefna áðurnefnt Caribbean Blue, Book Of Days, Anywhere Is, Only If, Lothlórien og Marble Halls. Svo skemmtilega vill til að fyrstu fjögur lögin koma einmitt fyrir í sömu röð á geisladiskinum Paint The Sky With Stars.