Dreif mig á fætur kl. 6 í gærmorgun. Kominn til Dalvíkur fyrir 8:00. Síðbúinn hádegisverður, skottúr til Akureyrar og aftur út á Dalvík eftir hugbúnaði, og pönnukökur lífguðu upp á annars tilbreytingasnauðan vinnudag. Kom aftur til Akureyrar rétt upp úr 20 um kvöldið. Leið mín lá svo nánast beint á Kaffi Akureyri með Kollu og Bylgju. Það var gaman.
Núna er ég orðinn þrælkvefaður með tilheyrandi kuldaskjálftum og svitaböðum á víxl. Get ímyndað mér að svona líði grýlukerti hituðu yfir loga. Síður en svo ánægjuleg byrjun á deginum. Ef ég verð sæmilega hraustur í fyrramálið ætla ég að endurtaka Dalvíkurferðina. MCSA námskeiðið hefst á föstudaginn. Vildi gjarnan geta sleppt námskeiðinu og undið mér beint í prófin. Námskeiðsframhald á laugardagsmorgunn. Ef heilsunni hefur enn ekki hrakað þá, er ætlunin að keyra til Reykjavíkur eftir hádegi. Kollu langar nefnilega í mat frá Rikki Chan.
28. febrúar 2007 kl. 9:55
Já, svo þú ætlar að drífa þig á námskeiðið! Hins vegar er ekkert sem bannar það að mæta bara í próf, hafi maður ekkert við námskeiðið að gera.
28. febrúar 2007 kl. 10:40
Að sjálfsögðu. Ja, nú þegar þú minnist á það… Því fylgja ótvíræðir kostir.
28. febrúar 2007 kl. 10:55
Er maturinn á Rikka Chan virkilega svona góður? Hvað hefur maður eiginlega verið að fara á misvið? Maður hefur nú s.s. heyrt af því að ostafylltar brauðstangir frá Pizza Hut séu fluttar á milli landshorna og Búkollu frá Pizzu67 í den hafi verið fluttar suður.
28. febrúar 2007 kl. 11:05
Tja, hann er a. m. k. mjög góður. Raunar mun betri en t. d. frá Pengs eða Nings að mínu mati. Nú fæst Búkolla nánast á hverjum einasta skyndibitastað, ýmist sem pizzur eða „bátar„. Já, og jafnvel samlokur. Rýrir gildi gömlu beljunnar svolítið.
28. febrúar 2007 kl. 14:05
Ég, sem Reykjavíkurmær, verð að kommenta á matinn hérna í Reykjavík. Það er til Búkolla sem bátur í bílalúgunni á móti Kringlunni, en hins vegar fer enginn þangað til að fá sér ekta Búkollu… ekki séns. Hins vegar var ég að smakka Mekong um daginn, og mér finnst það eiginlega betra en Nings og rikki chan… en besti kínverski/thailenski whatever staðurinn á landinu er eiginlega Menam sem er á Selfossi.
Varðandi ostafylltar brauðstangir, þá finnst mér þær mun betri á Pizza hut en á Greifanum, en hins vegar kemur maður norður í sumar bara fyrir það eitt að fá sér Brynjuís, Búkollupizzu og Greifapizzu… Thats what Akureyri stands for:)
28. febrúar 2007 kl. 20:22
Mér finnst nú orðið heimagerða Búkollan mín bara sú langbesta
enda ekkert nema eðalhráefni og elduð af … alúð
28. febrúar 2007 kl. 20:35
Forvitni mín hefur verið vakin, Tryggvi! Hvað um heim- og matarboð út á nesið við tækifæri?
Ég skil hins vegar ekki hvað fólk sér við pizzur frá Greifanum. Ég er lítt gefinn fyrir mat sem lýsið lekur af.
28. febrúar 2007 kl. 21:23
Það má nú ræða það eða upp í Lundina, víst ágætis eldhús þar líka.
28. febrúar 2007 kl. 22:02
Lundi? Nú kem ég ofan af fjöllum.
1. mars 2007 kl. 10:48
Átti að vera Lundunum
1. mars 2007 kl. 11:28
Ég er engu nær. Man ekki eftir neinum í augnablikinu sem… Bíðum nú við. Nei, ég er ekki að kveikja á perunni. :s