Jæja, þá er ég búinn að skila skattaskýrslunni, blessaðri. Gunnar var hjálpfús að vanda og leit yfir hana. Útreikningar mínir stóðust allar tæknilegar kröfur, svo ég hef auðsjáanlega eitthvað lært af reynslunni. Ákvað að koma við hjá piltunum í Stefnu og kasta kveðju á hópinn. Þeir voru hressir að vanda, en það olli mér vonbrigðum að daman mín hafði verið lokuð inni í geymslu, og önnur meira móðins komin í hennar stað. Mér fannst kaffið hennar engu betra, þrátt fyrir fegurri umbúðir.

Ég hafði það af að trassa fatahreinsunina. Hef ætlað mér að koma þar við frá því í haust, en jafnvel nú þegar þörfin er hvað mest, varð ég of seinn. Merkilegt nokk. Svo treysti ég bara á að veðrið verði með betra móti í fyrramálið en undanfarna daga, og færðin á milli Akureyrar og Reykjavíkur góð.