Afritun
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Byrjaði eldsnemma í gærmorgun á tilraunum til að bjarga skemmda harða diskinum. Afritun deildarinnar með Ghost gekk ekki, svo ég fór lengri leiðina. Setti upp stýrikerfið að nýju, fínstillti og útbjó mér sæmilegt vinnuumhverfi. Því næst tengdi ég gamla harða diskinn og hóf afritunina. Náði að flytja öll gögnin ósnortin á milli, að undanskildum uppsettum forritum. Síðan þá hef ég verið að setja upp allan þann hugbúnað sem ég nota daglega, sækja stillingar og leyfi yfir á gamla diskinn, og svo framvegis. Nú þegar er flest komið í eðlilegan farveg, þó ýmis forrit vanti enn. Reikna með að ljúka verkinu um kaffileytið á morgun.
Í morgun fór ég í bæinn rétt upp úr 10:00. Leiðin lá á pósthúsið til að senda reikning. Því næst fór ég í viðtal hjá Svæðisvinnumiðlun. Þeir hafa ákveðið að herða þumalskrúfurnar svo um munar. Nú á ég líka að sækja um störf í Reykjavík! Kom heim rétt fyrir hádegi og hélt tölvubrasinu áfram. Upp úr 14:00 fór ég aftur út í sólskinið og blíðuna. Síðar um daginn notaði ég tækifærið til að skola lítið eitt af bílnum, enda tímabært eftir ferðalagið suður. Þegar heim kom biðu mín fjórir reikningar í póstkassanum. Það fannst mér ósanngjarnt, ég sendi bara einn.
Annars má segja að páskafríið mitt sé byrjað. Engin kennsla fyrr en 11. apríl, ef mér skjátlast ekki. Ætla mér að nota drjúgan tíma í önnur verkefni og vinnu, aðra fermingarveislu, og jafnvel smá bíltúr eitthvert út í buskann.
30. mars 2007 kl. 14:28
Það hefði verið miklu skemmtilegra ef þú hefðir sent 3 en fengið bara einn reikning;)
1. apríl 2007 kl. 15:51
Einmitt það sem ég hugsaði.