Dómur yfir piltunum var kveðinn upp í dag vegna líkamsárásarinnar í maí, 2006. Frétt Morgunblaðsins, og dómurinn í heild sinni. Ósköp er ég feginn að þessum þætti sé loksins lokið. Ósýnilegu sárin eiga þó enn eftir að jafna sig að fullu. Strákanna vegna vona ég að þeir fái þá aðhlynningu sem þeir á þurfa að halda til að gera megi úr þeim nýta þjóðfélagsþegna.

Viðbót: Í leiðinni vil ég gjarnan koma á framfæri skoðun minni um þá er álíta að mennina eigi að aflífa eða loka inni til æviloka. Það finnst mér bera vott um þröngsýni og miskunnarleysi. En sitt sýnist hverjum.