Ósköp er ég feginn að þessi ofsaakstur átti sér ekki stað hér heima á Fróni. Íslendingar eru skynsamari en svo. Þakka fréttariturum Morgunblaðsins fyrir.
apríl 2007
Erlendar fregnir
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Niðurstöður kannanar
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Þátttakan hefur aldrei verið eins góð í könnunum hér og í apríl. Ég forvitnaðist um hve margir hefðu lesið bækurnar um Harry Potter, og niðurstöðurnar eru sláandi. 106 svöruðu játandi, en aðeins 9 neitandi. Þetta er mér ákveðið fagnaðarefni, því sjálfur held ég afar mikið upp á sögur J. K. Rowling. Þakka ykkur kærlega fyrir frábæra þátttöku.
Morgunkaffið
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ágætur dagur í dag. Fór á fætur 7 í morgun og ýtti við kaffivélinni. Það kumraði lítið eitt í henni í svefnrofunum, en fljótlega tók hún kipp og sprændi sjóðheitu kaffi í könnuna. Tímanum fram að hádegi varði ég í ýmis verkefni sem hafa ekki fengið næga athygli að undanförnu. Upp úr 1 fór ég í kaffi til Jans og Halldóru. Veðrið var svo indælt að við fengum okkur stuttan bíltúr til að skola ferðarykið af bíl þeirra hjóna. Því næst var fótbolti grafinn upp og við eyddum drjúgum tíma í að sparka á milli á grasflötinni norðan við húsið þeirra. Halldóra hafði boðist til að passa dóttur vinkonu sinnar, svo við létum af frekari boltaleikjum þegar sú stutta mætti. Í staðinn fengum við okkur sæmilegan göngutúr niður að Olís þar sem Jan dældi lofti í dekkin á reiðhjólinu sínu. Gengum aðra götu til baka í rólegheitum. Ég kvaddi skömmu síðar og dreif mig heim.
Ólafsfjörður
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Brá mér í hádegiskaffi til Lillu ömmu og Hartmanns í dag. Hún sagði mér svo frá afmæliskaffi á Ólafsfirði. Dóri frændi varð fimmtugur á miðvikudaginn og bauð sínum nánustu heim í dag. Ég reyndi að fá pabba gamla með, en allt kom fyrir ekki. Tölvuleikurinn var of spennandi. Lagði af stað til Ólafsfjarðar rétt um 3 í dag. Ekki löngu síðar var ég sestur til borðs með ættingjum sem ég hef því miður séð of lítið af í gegnum tíðina. Mikill fögnuður varð því þegar ég birtist óvænt í dyrunum. Borðið svignaði nánast undan veitingunum – tertum af öllum stærðum og gerðum og ýmsum smákökum. Ég vissi ekki að Dóri væri svona laginn við baksturinn. Næstu tvo tímana sátum við svo úti í blíðunni og spjölluðum og daginn og veginn. Gamlar minningar voru rifjaðar upp, og mér til skelfingar fannst jólakort frá 1984 með nektarmynd af mér í baði. Að veislu lokinni lagði ég af stað til Dalvíkur, með bílinn hlaðinn af tertum og brauði. Stoppaði stutta stund á Dalvík áður en ég hélt áfram til Akureyrar til að skila af mér sætabrauði og kveðjum.
Ostur þroskast
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 4 athugasemdir
Ég var búinn að steingleyma þessu fyrirbæri þar til Morgunblaðið rifjaði það upp fyrir mér í kvöld. Horfið á ost þroskast í beinni útsendingu. Hvenær ætli boðið verði upp á slíkar útsendingar frá gróandi grasi eða þornandi málningu? Ég get varla beðið.


