Brá mér í hádegiskaffi til Lillu ömmu og Hartmanns í dag. Hún sagði mér svo frá afmæliskaffi á Ólafsfirði. Dóri frændi varð fimmtugur á miðvikudaginn og bauð sínum nánustu heim í dag. Ég reyndi að fá pabba gamla með, en allt kom fyrir ekki. Tölvuleikurinn var of spennandi. Lagði af stað til Ólafsfjarðar rétt um 3 í dag. Ekki löngu síðar var ég sestur til borðs með ættingjum sem ég hef því miður séð of lítið af í gegnum tíðina. Mikill fögnuður varð því þegar ég birtist óvænt í dyrunum. Borðið svignaði nánast undan veitingunum – tertum af öllum stærðum og gerðum og ýmsum smákökum. Ég vissi ekki að Dóri væri svona laginn við baksturinn. Næstu tvo tímana sátum við svo úti í blíðunni og spjölluðum og daginn og veginn. Gamlar minningar voru rifjaðar upp, og mér til skelfingar fannst jólakort frá 1984 með nektarmynd af mér í baði. Að veislu lokinni lagði ég af stað til Dalvíkur, með bílinn hlaðinn af tertum og brauði. Stoppaði stutta stund á Dalvík áður en ég hélt áfram til Akureyrar til að skila af mér sætabrauði og kveðjum.

Mottan Kyrr Ólafsfjörður