Ágætur dagur í dag. Fór á fætur 7 í morgun og ýtti við kaffivélinni. Það kumraði lítið eitt í henni í svefnrofunum, en fljótlega tók hún kipp og sprændi sjóðheitu kaffi í könnuna. Tímanum fram að hádegi varði ég í ýmis verkefni sem hafa ekki fengið næga athygli að undanförnu. Upp úr 1 fór ég í kaffi til Jans og Halldóru. Veðrið var svo indælt að við fengum okkur stuttan bíltúr til að skola ferðarykið af bíl þeirra hjóna. Því næst var fótbolti grafinn upp og við eyddum drjúgum tíma í að sparka á milli á grasflötinni norðan við húsið þeirra. Halldóra hafði boðist til að passa dóttur vinkonu sinnar, svo við létum af frekari boltaleikjum þegar sú stutta mætti. Í staðinn fengum við okkur sæmilegan göngutúr niður að Olís þar sem Jan dældi lofti í dekkin á reiðhjólinu sínu. Gengum aðra götu til baka í rólegheitum. Ég kvaddi skömmu síðar og dreif mig heim.