Loksins er ég laus við kóngulóafælnina sem hefur hrjáð mig síðustu árin. Hvers vegna held ég það? Jú, ég fékk óvænta heimsókn í rúmið í nótt. Svört, búkurinn á stærð við nögl litlafingurs. Venjulega hefði ég rokið upp með látum og fært mig yfir í hinn enda íbúðarinnar uns hættan hefði liðið hjá, eða kisi gætt sér á gestinum. Þess í stað tók ég dýrið í lófann og lét það út um gluggann. Skammaðist mín svo ögn yfir að hafa hvorki boðið gestinum vott né þurrt áður en við kvöddumst. Flugufælnin er þó enn á sínum stað. Þó ég viti að hunangsflugurnar séu mestu meinleysingjar, og geitungar ekki sérstaklega árásagjarnir, tek ég ósjálfrátt til fótanna þegar þeir nálgast mig of mikið.
maí 2007
Sigur!
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Skýluvígsla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Tveimur árum eftir fjárfestinguna varð loks af vígslunni. Sundskýlan fékk almennilegt klórbað í sundlaug Dalvíkur í dag. Eddi kom með rútunni að sunnan í dag, en hann hafði farið aftur suður á tónleika Deep Purple og Uriah Heep. Því ákvað ég að drífa mig bara til Dalvíkur þriðja daginn í röð og taka piltinn með. Við fórum beint í laugina og hittum afganginn af fjölskyldunni þar. Eftir umtalsvert busl og sull var stefnan sett á Karlsrauðatorgið. Belgdi mig svo út af lasagna og hvítlauksbrauði að ég er kominn með myndarlegasta perustefni.
Að lokum var aðeins keyrt um bæinn og fleiri hús skoðuð. Þó engin innlit í þetta sinn.
Bárugata
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Eftir svínslega gott svín hjá Dóru föðursystur í gær fór ég til Dalvíkur. Keyrði aðeins um bæinn og fylgdist með mannlífinu úr hæfilegri fjarlægð. Mætti Oliver og Sigrúnu á rúntinum. Fór með þeim heim í kaffi og ís. Svo að skoða hús við Bárugötu 1. Stórt og reisulegt einbýlishús, ljósgult að lit með hvítum gluggum og hurðum. Fékk svo lánaða myndina Apocalypto hjá hjónunum áður en ég lagði af stað til Akureyrar.
Þegar ég kom heim byrjaði ég að horfa á myndina. Býsna áhugaverð, þó blóðug sé. Fór að velta fyrir mér hvort allar myndir sem Mel Gibson leikstýrir eða framleiðir séu svona grófar. Góðar, en blóðugar.
Auga skógarins
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Annað kvöldið í röð fengum við Bylgja okkur göngutúr um Kjarnaskóg. Tók eina mynd á meðan á göngunni stóð.
Kaffi, kökur, Kjarnaskógur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ákvað í morgun að bregða mér í hádegiskaffi í Hafnarstrætið. Engu líkara var en að gömlu hjúin hefðu átt von á mér, því á könnunni var nýlagað kaffi. Hartmann fór víst til Dalvíkur í gær með eitthvað af trémununum sínum á sýningu í skólanum. Dóri frændi fór víst einnig með á þriðja tug málverka. Framhald á sýningunni í dag varð til þess að ég keyrði afa til Dalvíkur, sem að sjálfsögðu endaði með kaffi hjá Oliver. Um þrjú fór ég aftur til Akureyrar, beina leið í Huldugilið í meira kaffi og kökur. Díana frænka er 25 ára í dag.
Í gær ætlaði ég hinsvegar að sletta ögn úr klaufunum og jafnvel kíkja á eitthvert öldurhúsið. Þær áætlanir fóru út um þúfur. Í staðinn fékk ég mér góðan bíltúr með Bylgju, meðal annars inn í Kjarnaskóg þar sem við gengum“litla hringinn“ í rólegheitum. Skemmti mér mun betur en ég hefði sennilega gert ef fyrri áætlanir hefðu staðist.

