Ákvað í morgun að bregða mér í hádegiskaffi í Hafnarstrætið. Engu líkara var en að gömlu hjúin hefðu átt von á mér, því á könnunni var nýlagað kaffi. Hartmann fór víst til Dalvíkur í gær með eitthvað af trémununum sínum á sýningu í skólanum. Dóri frændi fór víst einnig með á þriðja tug málverka. Framhald á sýningunni í dag varð til þess að ég keyrði afa til Dalvíkur, sem að sjálfsögðu endaði með kaffi hjá Oliver. Um þrjú fór ég aftur til Akureyrar, beina leið í Huldugilið í meira kaffi og kökur. Díana frænka er 25 ára í dag.

Í gær ætlaði ég hinsvegar að sletta ögn úr klaufunum og jafnvel kíkja á eitthvert öldurhúsið. Þær áætlanir fóru út um þúfur. Í staðinn fékk ég mér góðan bíltúr með Bylgju, meðal annars inn í Kjarnaskóg þar sem við gengum„litla hringinn„ í rólegheitum. Skemmti mér mun betur en ég hefði sennilega gert ef fyrri áætlanir hefðu staðist.