29. maí 2007
Skýluvígsla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Tveimur árum eftir fjárfestinguna varð loks af vígslunni. Sundskýlan fékk almennilegt klórbað í sundlaug Dalvíkur í dag. Eddi kom með rútunni að sunnan í dag, en hann hafði farið aftur suður á tónleika Deep Purple og Uriah Heep. Því ákvað ég að drífa mig bara til Dalvíkur þriðja daginn í röð og taka piltinn með. Við fórum beint í laugina og hittum afganginn af fjölskyldunni þar. Eftir umtalsvert busl og sull var stefnan sett á Karlsrauðatorgið. Belgdi mig svo út af lasagna og hvítlauksbrauði að ég er kominn með myndarlegasta perustefni.
Að lokum var aðeins keyrt um bæinn og fleiri hús skoðuð. Þó engin innlit í þetta sinn.
Þessi færsla hefur verið lesin 404 sinnum
30. maí 2007 kl. 15:06
Eg keypti mér skýlu til þess að nota í s.l. ferð norður. Hún er enn ónotuð
31. maí 2007 kl. 13:28
Mín er þrettán ára
)))
31. maí 2007 kl. 14:48
Til hamingju með góða endingu. Er hún nokkuð af gerðinni „Speedo„?
31. maí 2007 kl. 21:49
Ég gleymdi að segja að hún hefur aldrei verið notuð.
1. júní 2007 kl. 0:03
Það var og. Þið hjónin eigið líklega ekki „heitan pott„ í sveitinni? Því ef svo væri, þá þætti mér notkunarleysið með öllu óskiljanlegt.