júní 2007


Mér barst óvænt símtal um kaffileytið frá höfuðstöðvum þjóðskrárinnar. Þá var mér boðið atvinnuviðtal í Reykjavík þann 4. júlí. Ég sótti um stöðu kerfisstjóra þar fyrir skemmstu. Engin svör hafa borist frá RHÍ enn sem komið er, og raunar ekki Veðurstofu Íslands heldur.

Verð þó að segja að mér finnst svolítið leiðinlegt að öll störfin sem ég hef áhuga á skuli vera á höfuðborgarsvæðinu. Hvernig ætli standi á því?

Ég tók upp bókina Dreamsongs að gamni mínu í gærkvöld. Hef opnað hana af og til, og lesið svo sem eina sögu í senn. Í gær las ég hinsvegar sögu Georgs um upphaf og þróun ferils hans á sviði ævintýra og vísindaskáldsagna. Tindinum var náð með lokaorðum kaflans.
Lesa meira af „Skruddan“

Tvær limrur og ferskeytla láku úr smiðju minni í dag. Á árum áður hafði ég gaman af að hnoða saman allskyns vitleysu, en áhuginn dvínaði eftir sem á leið. Nú óttast ég hið versta, að óhóflegur leirburður muni vella um vefdagbókina í framtíðinni. Þessar eru ekki fyrir viðkvæma bragfræðifasista, því fleiri reglur voru brotnar við gerð þeirra en ég get talið á fingrum mínum. ;) Lesa meira af „Leirburður“

Fór í kaffi í Hafnarstrætið í dag. Þaðan fór ég svo með Hartmann út í Húsasmiðju að velja krossvið. Mér finnst ilmurinn af timbrinu alltaf jafn góður í skemmunni. Ekki síðri en af nýslegnu grasi, eða ferskleikinn í loftinu eftir úrhellisrigningu. Jói Heiðars hefur verið að háþrýstiþvo blokkina í dag. Bauð honum upp á kaffisopa þegar hann var búinn með svalirnar okkar. Svo fór ég og keypti eldsneyti á bílinn og mig. Ég fékk samt bara 4,5% Tuborg Grön, ekkert í líkindum við 95 oktana bensínið á bílinn.

Hef verið að dunda mér við þjóðskrárvefinn í morgun. Þar er kominn einskonar handraði til að halda utan um fólk sem leitað er að. Þar má einnig sjá alla meðlimi fjölskyldu viðkomandi. Í framhaldi af því fékk ég þá hugmynd að bjóða notendum að fá sendar tilkynningar þegar einhver í þeirra handröðum eiga afmæli. Það er svo gaman að dunda sér við svona smáræði.

Sá myndina Hot Fuzz í gær. Það var gaman að sjá gömlu kempurnar Timothy Dalton og Bill Nighy. Sjálf myndin var bráðfyndin, ég engdist blátt áfram sundur og saman af hlátri.

Forvitnin er við það að kæfa mig í dag. Mig langar svo óskaplega til að vita hverjir það eru sem greiddu Dalvík atkvæði í skoðanakönnunni um hvar ég eigi að vera. Burtséð frá því, þá er loksins farið að birta og sjá til sólar hér aftur.

Eftirfarandi síða »