Þrátt fyrir sólríka og hlýja daga hef ég gefið mér góðan tíma í að rifja upp kynni mín af tónlist Shadows. Annars hef ég varið drjúgum tíma í sólinni á svölunum með ágætum árangri. Svo er ég orðinn kvefaður í þriðja sinn á árinu. Til allrar lukku er það bara nefið og hálsinn, án annarra óþæginda á borð við hita og beinverki. Dugnaður hefur verið í algjöru lágmarki, naumast snert á nokkru sem gæti talist til vinnu.

Ekki alls fyrir löngu tók ég eftir galla í kerfinu sem veldur því að leitarorð fyrir færslur detta út eða týnast. Líklega tengist það síðustu uppfærslu WordPress. Ég nenni bara ekki að finna út úr því núna. Uppfærði kannanakerfið nýlega, nú með AJAX og öðru álíka móðins.

Ég varð hvorki var við talandi kýr né hamslausa seli í nótt. Líklega er það vegna þess að ég fór ekki út, hvorki til að velta mér upp úr dögginni né í öðrum erindagjörðum. Kannski á næsta ári.