Tvær limrur og ferskeytla láku úr smiðju minni í dag. Á árum áður hafði ég gaman af að hnoða saman allskyns vitleysu, en áhuginn dvínaði eftir sem á leið. Nú óttast ég hið versta, að óhóflegur leirburður muni vella um vefdagbókina í framtíðinni. Þessar eru ekki fyrir viðkvæma bragfræðifasista, því fleiri reglur voru brotnar við gerð þeirra en ég get talið á fingrum mínum. ;)

Litlum gáfum gæddur,
bleikum hlekkjum klæddur
asnaðist
í fangavist
mýldur bæði og mæddur.

Á blogginu finnast oft merðir
og því ekki skrýtið að verðir
hugmyndalaus
og viðþolslaus
við limru og vísnagerðir.

Hvert skal förinni heitið,
um næstu helgi?
Sendið mér skeyti og reytið
til áfengi handa svelgi.

Tilvísanir í upphaflegar færslur má finna hér, hér og hér.