júní 2007


Síðustu daga hef ég litið á fáeinar kvikmyndir. Til að byrja með, Captain Ron frá árinu 1992 með Kurt Russel og Martin Short í aðalhlutverkum. Þetta er með þeim bestu gamanmyndum sem ég hef séð. Held þó að hún hafi aldrei notið neinna vinsælda að ráði, eflaust fallið í skuggann af Lethal Weapon 3 sem kom út fyrr á sama ári. Svo horfði ég á Next með Nicolas Cage, gefin út fyrr á þessu ári. Óvenjuleg að ýmsu leyti, og í fyrstu var ég ekki alveg viss hvort að mér líkaði hvernig hún endar. Er þó kominn á þá skoðun að þetta sé með betri myndum ársins. School for Scoundrels olli mér aðeins vonbrigðum. Mér tókst að kreista fram ámátleg fliss af og til, en lítið umfram það.

Hvanndalsbræður ætla að koma fram í Bakaríinu á Dalvík á föstudagskvöld. Fjörið byrjar kl. 21:00 og aðgangseyrir er kr. 1.000. Ég hef aldrei heyrt í þessum ágætu mönnum, svo ég er að hugsa um að láta það eftir mér. Ætlaði hvort eð er að skreppa til Dallas á föstudaginn að öllu óbreyttu. ;)

Var að lesa gamla færslu og ákvað að rifja upp kynni mín af MyHeritage.com með nýrri ljósmynd. Meðal annars komu Michael Moore og Gary Sinise upp. Mér leist svo vel á Gary að ég gerði morfmynd líka.

Endurnýjaði lénið iceware.net til tveggja ára. Gott að þurfa ekki að hugsa um það á næstunni. Fer til Dalvíkur síðar í dag. Hef tröllatrú á lækningamætti þess. Lauflétt gáta að lokum.

Hvar er hnífur þess manns, sem er í stökustu vandræðum?

Mér varð lítið úr hvíld í nótt. Hvert hóstakastið á fætur öðru rak mig á fætur ósofinn og þreyttan. Í staðinn lagaði ég til í bókhaldinu.

Þórður kemur seint heim um kvöldið. Í stofunni er svo kalt að nístir í gegnum merg og bein. Á borðinu er lampi, kerti á hillu við rúmið, og konan hans hefur raðað eldsneyti í ofninn og tréspónum undir til að auðvelda íkveikju. Þórður tekur upp eldspýtnastokkinn og sér að í honum er aðeins ein eldspýta. Á hann að byrja á því að kveikja á kertinu eða lampanum, eða hvað?