Fyrst að ég var byrjaður á annað borð, uppfærði ég myndasafnið líka, úr Coppermine Photo Gallery útgáfu 1.4.4 í 1.4.12. Svo hef ég verið að dunda mér við að búa til samskonar þema fyrir myndasafnið og ég gerði fyrir vefdagbókina (upphaflega Connections eftir Patricia Muller). Að auki hófst ég handa við að íslenska þýðingu á kerfinu. Það gengur hægt, en gengur þó.
júlí 2007
Fleiri uppfærslur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
WordPress 2.2.1
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir WordPressPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ég uppfærði vefdagbókina í gær, nokkuð sem ég hef látið sitja of lengi á hakanum. Fór úr WordPress útgáfu 2.1.2 í 2.2.1. Mér virðist að fyrst og fremst sé um lagfæringar að ræða, minna um hverskyns nýjungar. Í tilefni uppfærslunnar langar mig til að gera eitthvað fleira fyrir vefdagbókina. Ég hef bara engar hugmyndir. Ef ykkur kemur eitthvað sniðugt til hugar, tek ég feginn við öllum uppástungum.
Fljúgandi gestir
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Nú er geitungur í glugganum hjá mér. Ares neitaði að borða hann, og vatt sér í staðinn út á svalir í sólbað. Af öllum þeim fljúgandi skordýrum sem ég hef rekist á, er mér verst við geitunga. Þó hef ég aldrei verið stunginn eða bitinn, ekki einu sinni af moskítóflugunum á Majorka sem barn. Fyrir fáeinum dögum lá ég í sólbaði á svölunum, þegar óvæntan og sjaldséðan gest bar að garði. Lítil maríubjalla flögraði inn á svalir og gerði sig heimakomna á bringunni á mér. Líklega verið þreytt eftir flugið. Hún var falleg.
Gluggar og gler
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Þá er bílgarmurinn kominn á verkstæðið. Skipt verður um framrúðu, lakkskemmdir lagaðar lítið eitt, og endað á almennri „læknisskoðun“. Það vildi svo vel til að með bílnum fylgdi lítil dós með sama rauða lakkinu og hann hefur verið sprautaður með á sínum tíma. Þó hann sé enn gulur samkvæmt skráningarskírteininu. Annars var líka skipt um glugga í herberginu í gær, sem hluti af viðhaldi blokkarinnar og málningarvinnu sem stendur yfir um þessar mundir. Vona að það nægi til að koma í veg fyrir leka í framtíðinni.
Ég lét undan freistingunni í vikunni og opnaði Harry Potter and the Deathly Hallows. Einkar ánægjuleg lesning, líkt og fyrri bækurnar. Nú vantar mig nýja bók.
Kerfisstjóradagurinn
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækni, Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Undanfarin átta ár hefur síðasti föstudagur júlí verið alþjóðlegur tyllidagur til að minnast og þakka kerfisstjórum fyrir unnin störf. Ég get svo sem ekki ímyndað mér neina þörf fyrir slíkan dag, því sama ætti þá að gera fyrir alla aðra, hvaða störf sem þeir inna af hendi. Ég hefði ekki einu sinni munað eftir þessu ef SlashDot nyti ekki við. Fannst þetta þó viðeigandi í þetta sinn, ekki síst vegna starfsins sem mér hlotnaðist á dögunum (þó ég hefji ekki störf fyrr en 13. ágúst).
Annars eru einmitt um átta ár frá því að ég setti fyrsta vefþjóninn minn í gang. Hann gengur enn þann dag í dag (vélbúnaðurinn hefur verið uppfærður að einhverju leyti), og hýsir meðal annars þessa vefdagbók.
Góða helgi!