Undanfarin átta ár hefur síðasti föstudagur júlí verið alþjóðlegur tyllidagur til að minnast og þakka kerfisstjórum fyrir unnin störf. Ég get svo sem ekki ímyndað mér neina þörf fyrir slíkan dag, því sama ætti þá að gera fyrir alla aðra, hvaða störf sem þeir inna af hendi. Ég hefði ekki einu sinni munað eftir þessu ef SlashDot nyti ekki við. Fannst þetta þó viðeigandi í þetta sinn, ekki síst vegna starfsins sem mér hlotnaðist á dögunum (þó ég hefji ekki störf fyrr en 13. ágúst).

Annars eru einmitt um átta ár frá því að ég setti fyrsta vefþjóninn minn í gang. Hann gengur enn þann dag í dag (vélbúnaðurinn hefur verið uppfærður að einhverju leyti), og hýsir meðal annars þessa vefdagbók. :)

Góða helgi!