Þá er bílgarmurinn kominn á verkstæðið. Skipt verður um framrúðu, lakkskemmdir lagaðar lítið eitt, og endað á almennri „læknisskoðun„. Það vildi svo vel til að með bílnum fylgdi lítil dós með sama rauða lakkinu og hann hefur verið sprautaður með á sínum tíma. Þó hann sé enn gulur samkvæmt skráningarskírteininu. Annars var líka skipt um glugga í herberginu í gær, sem hluti af viðhaldi blokkarinnar og málningarvinnu sem stendur yfir um þessar mundir. Vona að það nægi til að koma í veg fyrir leka í framtíðinni.

Ég lét undan freistingunni í vikunni og opnaði Harry Potter and the Deathly Hallows. Einkar ánægjuleg lesning, líkt og fyrri bækurnar. Nú vantar mig nýja bók.