29. júlí 2007
Fljúgandi gestir
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Nú er geitungur í glugganum hjá mér. Ares neitaði að borða hann, og vatt sér í staðinn út á svalir í sólbað. Af öllum þeim fljúgandi skordýrum sem ég hef rekist á, er mér verst við geitunga. Þó hef ég aldrei verið stunginn eða bitinn, ekki einu sinni af moskítóflugunum á Majorka sem barn. Fyrir fáeinum dögum lá ég í sólbaði á svölunum, þegar óvæntan og sjaldséðan gest bar að garði. Lítil maríubjalla flögraði inn á svalir og gerði sig heimakomna á bringunni á mér. Líklega verið þreytt eftir flugið. Hún var falleg.
Þessi færsla hefur verið lesin 281 sinni
29. júlí 2007 kl. 18:47
Spreybrúsi og kveikjari virkar vel á Geitunga sem og aðrar skorskepnur.
30. júlí 2007 kl. 0:03
Það er nefnilega hitt meinið. Ég get ómögulega fengið það af mér að drepa dýrin. Þau eiga sinn tilvistarrétt ekki síður en við, þó svo ég óttist þau.
30. júlí 2007 kl. 2:07
En kindurnar og kýrnar. Eiga þau ekki líka sinn tilverurétt. Hættu þá að éta kjöt…….
30. júlí 2007 kl. 9:52
Þetta var góður punktur hjá Fúsa, EN þó að ein manneskja hætti að borða kjöt þá breytist nú lítið:)
30. júlí 2007 kl. 11:07
Þið misstuð alveg af mínum punkti.
Þó ég eigi erfitt með að drepa þessi skordýr, er ekki þar með sagt að ég gráti þó einhver annar geri það.