30. júlí 2007
Fleiri uppfærslur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Fyrst að ég var byrjaður á annað borð, uppfærði ég myndasafnið líka, úr Coppermine Photo Gallery útgáfu 1.4.4 í 1.4.12. Svo hef ég verið að dunda mér við að búa til samskonar þema fyrir myndasafnið og ég gerði fyrir vefdagbókina (upphaflega Connections eftir Patricia Muller). Að auki hófst ég handa við að íslenska þýðingu á kerfinu. Það gengur hægt, en gengur þó.
Þessi færsla hefur verið lesin 413 sinnum
31. júlí 2007 kl. 11:23
úfff dugnaður er þetta. Ég komst einmitt að því í gær að MT er komið í útgáfu 4.xx… ég er ennþá með 2.661!
þjáist greinilega ekki að versionitis.
31. júlí 2007 kl. 11:28
Nákvæmlega.
Eru þeir samt ekki farnir að selja þetta? Minnir að þegar ég ætlaði að prófa einhverja 3.x útgáfu, var það ekki hægt án þess að punga út haug af seðlum.