Ég uppfærði vefdagbókina í gær, nokkuð sem ég hef látið sitja of lengi á hakanum. Fór úr WordPress útgáfu 2.1.2 í 2.2.1. Mér virðist að fyrst og fremst sé um lagfæringar að ræða, minna um hverskyns nýjungar. Í tilefni uppfærslunnar langar mig til að gera eitthvað fleira fyrir vefdagbókina. Ég hef bara engar hugmyndir. Ef ykkur kemur eitthvað sniðugt til hugar, tek ég feginn við öllum uppástungum. ;)