ágúst 2007


A cow is a completely automated milk-manufacturing machine. It is encased in untanned leather and mounted on four vertical, movable supports, one at each corner. The front end of the machine, or input, contains the cutting and grinding mechanism, utilizing a unique feedback device. Here also are the headlights, air inlet and exhaust, a bumper and a foghorn.

At the rear, the machine carries the milk-dispensing equipment as well as a built-in flyswatter and insect repeller. The central portion houses a hydro- chemical-conversion unit. Briefly, this consists of four fermentation and storage tanks connected in series by an intricate network of flexible plumbing. This assembly also contains the central heating plant complete with automatic temperature controls, pumping station and main ventilating system. The waste disposal apparatus is located to the rear of this central section.

Cows are available fully-assembled in an assortment of sizes and colors. Production output ranges from 2 to 20 tons of milk per year. In brief, the main external visible features of the cow are: two lookers, two hookers, four stander-uppers, four hanger-downers, and a swishy-wishy.

Þá eru nærri því þrjár vikur að baki í höfuðborginni og nýja starfinu. Búinn að koma mér ágætlega fyrir í Skógarhlíðinni og líkar vel. Er m. a. s. þegar búinn að ná 40 tímunum í þessari viku. Hugsa að ég taki svolitla skorpu í bílnum um helgina; þvo, pússa, bóna, skipta um bremsuljós, ryksuga, þurrka af, o. s. frv. Í versta falli geri ég ekkert af þessu.

Hjá Þjóðskrá er spennandi ferðalag framundan, þ. e. 10. nóvember. Gisting á fínu hóteli yfir nótt, heitir pottar, matur og aðrar veitingar. Er þó enn á báðum áttum hvort að ég eigi að fara. Það veltur allt á því hvort einhver skemmtileg og hugguleg skvísa vilji fara með mér. Látið mig vita fyrir 4. september. ;)

Næst á dagskrá er að keyra til borgarinnar. Hlakka jafnvel til þriðju vinnuvikunnar. Að baki er umtalsverður pirringur, smá lagfæringar á Vanaheim (aðal netþjóninum mínum) og uppsetning varaleiðar fyrir MySQL. Ef MySQL stöðvast aftur (svo ekki sé minnst á SSH!) á Vanaheim, get ég í það minnsta skipt yfir á annan gagnagrunnsþjón. Lúxus. Gærdagurinn var með eindæmum ágætur. Jan og ég tókum dágóða leikjasyrpu, sem samanstóð af AQ2 og HOMM3 – vorum að langt fram á nótt. Fór fyrr í dag til Beyja og hreinsaði aðeins til á einni tölvu þar, á meðan hann fór með bílinn og snéri ofan af bremsuslöngunni.

Um kvöldmatarleytið í gær tók ég eftir því að einn þjónanna minna virtist látinn. Að minnsta kosti gagnagrunnsþjónninn. Reyndi SSH, án árangurs. Aðrar þjónustur voru virkar, s. s. DNS og póstur. Svo ég dreif mig af stað norður strax eftir vinnu í dag. Kominn heim, búinn að endurræsa þjóninn. Það fer ekki á milli mála að mér er ætlað að berjast við netþjóna á öllum vígstöðvum. Biðst velvirðingar á vandræðunum og töfinni. Góða helgi!

Rétt fyrir 6 sótti ég Jóhann Inga upp í Gerðuberg. Keyrði vinkonu hans heim í Flúðasel, og fór svo niður á Hverfisgötu. Stansaði fyrir utan Nexus. Tók andköf þegar ég gekk inn og skimaði í kringum mig. Dýrðin var ólýsanleg, tilfinningarnar báru mig nærri því ofurliði. Heill veggur þakinn ævintýrabókum. Útópía í 101, Reykjavík. Gaf mér góðan tíma til að lesa titlana og nöfn höfundanna. Strauk varlega eftir kili bóka sem vöktu áhuga minn. Þegar Jóhann náði loksins að vekja mig af doðanum, hélt ég á Icewind Dale þríleiknum í annarri hönd, Legacy of the Drow í hinni. Gekk með dýrgripina að búðarborðinu, borgaði, þáði poka, og fór út. Ég sakna verslunarinnar nú þegar.

Eftirfarandi síða »